Myndskeið frá B-úrslitum í fjórgangi-
Meðfylgjandi er myndskeið frá B-úrslitum fjórgangskeppninnar á Heimsmeistaramótinu.
Þar sigraði Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu eftir nokkuð spennandi keppni við Agnesi Helgu Helgadóttur og Gná fra Jakobsgarden sem kepptu fyrir hönd Noregs. Þar með tryggðu Hulda og Kjuði sér sæti í A-úrslitum þar sem hún keppti með eiginmanni sínum, Hinriki Bragasyni á Sigri frá Hólabaki, um heimsmeistaratitilinn og lauk mótinu í 6. sæti greinarinnar.
Í B-úrslitunum öttu einnig kappi Hekla Katharína Kristinsdóttir á Gautreki frá Torfastöðum og Johanna Beuk frá Þýskalandi á Merkur von Birkenlund, um gull í flokki yngri knapa. Skemmst er frá því að segja að Hekla Katharína og Gautrekur stóðu sig með glæsibrag, urðu í 9. sæti greinarinnar og heimsmeistarar í ungmennaflokkinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH