Mývatn Open
Ísmótið Mývatn Open verður haldið helgina 10.-11. mars 2017 á Stakhólstjörn við Skútustaði í Mývatnssveit. Keppt verður í A flokk, B flokk, tölti (2 styrkleikaflokkar), og hraðaskeiði þar sem sá sem fer hraðast samkvæmt radarmælingu lögreglu sigrar!
Hestamannafélögin Grani og Þjálfi bjóða í reiðtúr út á frosið Mývatn á föstudeginum og er öllum hjartanlega velkomið að taka þátt. Sel-Hótel Mývatn býður knöpum upp á samlokur og heitt kakó úti í eyju.
Dagskrá:
Föstudagur 10. mars
Hópreið um Mývatn kl. 16:30. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Hópreiðin fer frá á Stakhólstjörn hjá Sel-Hótel Mývatni.
Bílastæði eru við Sel-Hótel Mývatn
Laugardagur:
10:00 B-flokkur, 2. og 1. flokkur, forkeppni og úrslit.
Hraðaskeið. Lögreglan mælir hraðann og sá sem nær mestum hraða sigrar!
A-flokkur, 2. og 1. flokkur, forkeppni og úrslit.
Tölt, 2. og 1. flokkur, forkeppni og úrslit
Að lokinni keppni verður verðlaunaafhending yfir kaffihlaðborði hjá Sel-Hótel Mývatn.
Að kvöldi laugardags verður hestamannahóf á Sel-Hótel Mývatni.
19:30 Húsið opnar fyrir stemmingu kvöldsins, videosýning frá afrekum dagsins á breiðtjaldi.
20:30 Kvöldverðarhlaðborð – öllum opið. Verð: 5.900,-
Skráningar í keppni sendist á netfangið [email protected]. Skráningarfrestur er til kl. 20:00 miðvikudaginn 8. mars. Eftirtalið þarf að koma fram í skráningu: Keppnisgrein, styrkleikaflokkur, nafn knapa, nafn hests, litur, aldur, faðir og móðir.
Þeir sem ekki geta sent skráningu sína með tölvupósti geta haft samband við Hildi í síma 867-6500.
Skráningargjald er 2.500 kr. á hverja skráningu, greiðist inn á reikning 1110-26-138, kt. 480792-2549. Vinsamlegast komið með kvittun eða sendið á netfangið [email protected]. Taka verður fram fyrir hvaða hest og knapa er verið að greiða. Ekki verður posi á staðnum þannig að fólk er beðið að greiða inn á reikninginn eða hafa annars reiðufé meðferðis.
Bókanir í kvöldverð fara fram hjá Sel-Hótel Mývatn í síma 464-4164 eða [email protected].
Þeim gestum og keppendum sem þurfa hesthúspláss er bent á að hafa samband við Ásdísi í síma 861-0274.
Fjölmennum og höfum gaman saman!
Styrktaraðilar mótsins eru meðal annars Sel-Hótel Mývatn, Mýflug, RUB23, Jarðböðin, Daddi’s Pizza, Hikeandbike, Vogafjós, Skútustaðahreppur, Saltvík hestamiðstöð, FerroZink, Lífland, Bústólpi, Íslenskt.is, Purity Herbs, Hótel Kea, Kaffi Borgir, Bautinn og Eagle Air.
Hestamannafélögin Grani og Þjálfi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH