Mývatn open
Hið feyki vinsæla hestamót Mývatn Open – Hestar á ís verður haldin næstu helgi, 7. og 8. mars. Á föstudaginn bíður Hestamannafélgið Þjálfi í reiðtúr út á frosið Mývatn og Sel-Hótel Mývatn býður knöpum upp á samlokur og heitt kakó út í Hrútey. Mótshaldið hefst svo á laugardaginn þar sem keppt verður í B og A tölti og góðhestakeppni. Verðlaunaafhending verður strax eftir keppni yfir kaffihlaðborði og um kvöldið verður slegið upp hestamannahófi á Sel Hótel Mývatni með veisluhlaðborði og kráarstemmningu.
Það er því um að gera að skella sér í Mývatnssveit um helgina og upplifa náttúru, hesta og menn. Nánari upplýsingar er að finna á www.myvatn.is
Styttu haustið með EiðfaxaTV