Nafnasamkeppni á nýtt hestamannafélag
„Hestamannafélagið Kjóavöllum – Nafnasamkeppni
Nýstofnað hestamannafélag, Hestamannafélagið Kjóavöllum, býður til samkeppni um nafn á félagið. Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni, bæði félagsmönnum og öðrum.
Ásamt tillögu að nafni og skýringum skal nafn og kennitala þátttakanda fylgja með í lokuðu umslagi.
Tillögur þurfa að hafa borist til félagsins í seinasta lagi 15. janúar 2013, merkt:
Hestamannafélagið Kjóavöllum
Pósthólf 8413
128 Reykjavík
Nafnanefnd félagsins mun fara yfir tillögurnar og leggja fram þau nöfn sem kosið verður um á komandi aðalfundi félagsins. Meirihluta atkvæða þarf við nafnavalið og verður kosið milli þeirra tveggja nafna sem flest atkvæði hljóta fáist ekki hrein úrslit við fyrstu kosningu. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir vinningsnafnið og verður dregið um vinningshafa, hafi tillaga að því nafni borist frá fleiri en einum þátttakanda.
Með bestu jóla- og nýársóskum“
segir í tilkynningu frá stjórn Hestamannafélagsins Kjóavöllum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH