„Nala er einstök geðslagsprýði“

  • 30. júní 2021
  • Sjónvarp Fréttir

Janus Halldór Eiríksson stundar tamningar og útreiðar að Laugarbökkum í Ölfusi. Janus hefur oft verið vel ríðandi og sýnt fjöldan allan af góðum hrossum í kynbótadómi sem og gert það gott í keppni. Í vor sýndi hann 4.vetra gamla hryssu úr eigin ræktun sem vakti verðskuldaða athygli, Nölu frá Varmá. Nala hlaut 8,14 fyrir sköpulag, 8,22 fyrir hæfileika og 8,19 í aðaleinkunn, klárhryssa. Þar af hlaut hún einkunnina 9.5 fyrir tölt.

Blaðamaður Eiðfaxa heimsótti Janus að Laugarbökkum þar sem hann sagði okkur meira frá þessari mögnuðu hryssu sem og sýndi okkur glæsilega aðstöðu þar á bæ.

Heimsóknina má horfa á í spilaranum hér að ofan.

Nala frá Varmá ljósmynd/Gísli Guðjónsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link