Námskeið fyrir ungt keppnisfólk – skráning

  • 21. febrúar 2011
  • Fréttir
Námskeið fyrir ungt keppnisfólk - skráning

Hestamannafélagið Léttir fyrirhugar að halda námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni í Top Reiter höllinni í byrjun mars.

Námskeiðið verður aðallega ætlað þeim sem eru lengra komnir og hafa hug á sýninga og keppnisþjálfun. Námskeiðið verður þannig uppbyggt, að þetta verða fimm skipti með tveggja vikna fresti. Kennari verður Ásdís Helga Sigursteinsdóttir reiðkennari frá Hólum.

Léttisfélagar sitja fyrir ef fullbókast á námskeiðið. 

Námskeiðsgjald kr. 10.000.- fyrir Léttisfélaga og 15.000.- fyrir utanfélagsmenn.

Minnt er á að þeir Léttisfélagar sem ekki hafa nýtt sér Samherjastyrkinn geti nýtt sér hann í þetta námskeið.

Áhugasamir skrái sig inn á [email protected] fyrir föstudaginn 25. febrúar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link