Námskeið í járningum
Námskeiðið er einkum ætlað hestaeigendum og -ræktendum.
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður
hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi.
Tími: Lau. 1. mars, kl. 10:00-18:00 og sun. 2. mars, kl. 9:00-16:00 í húsakynnum Spretts á Kjóavöllum í Garðabæ (19,5 kennslustundir).
Verð: 22.900 kr. (innifalið í verði er kennsla, námsgögn og léttar veitingar í hádegi)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH