Námskeið með Antoni Páli Níelssyni
Föstudaginn 2.desember og sunnudaginn 4.desember mun Sprettur halda námskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni. Námskeiðið hefst eftir hádegi á föstudeginum 2.des. og stendur fram á kvöld, ekki verður kennt á laugardeginum en svo mun námskeiðið halda áfram á sunnudeginum 4.des. og fram eftir degi.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.
Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin. Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana.
Tveir valmöguleikar á kennslu eru í boði:
2x30mín einkatími – föstudag og sunnudag
eða 1x60mín einkatími – föstudag og sunnudag.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32.000. kr pr þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Skráningu lýkur miðvikudaginn 30.nóv.
Fræðslunefnd Spretts
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH