Námskeið og fræðsla um járningar
Járningadagar Járningamannafélags Íslands verða nú haldnir að öðru sinni 26. og 27. október n.k. Að þessu sinni mun dagskráin fara fram að Völlum í Ölfusi í glæsilegri starfaðstöðu og húsakynnum Eldhesta.
Í boði verður fjölbreytt dagskrá sem byggist upp á námskeiði, fræðslu og sýningum sem undirstrika mikilvægi góðrar hófhirðu og járninga þar sem fagleg vinnubrögð og líffræðileg þekking eiga að koma saman. Laugardaginn 27. október er Dargur járninga opin dagskrá fyrir almenning og Íslandsmót í járningum.
Margfaldur Svíþjóðar- og Norðurlandameistari í járningum Jesper Eriksson Eurenius mun koma og miðla af reynslu sinni og sína listir sínar. Jesper hefur einnig keppt á heimsmeistaramóti í járningum og verið þar í verðlaunasæti. Þá hefur hann töluverða reynslu af íslenskum hestum frá heimalandi sínu sem járningamaður og hestamaður. Hann hefur víða haldið námskeið og einnig verið duglegur að sækja sér vitneskju frá öðrum fræði- og járningamönnum víða um heim.
Járningamenn og aðrir hestamenn takið dagana frá og látið þennan viðburð ekki fara fram hjá ykkur.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH