Námskeið um dómgæslu væntanlegt
„Í ljósi þeirrar miklu umræðu sem skapast hefur um dómaramál teljum við rétt að koma saman á alvöru grundvelli og ræða saman um dómgæslu, svo hún verði meira sannfærandi og sátt um hana skapist,“ segir Lárus Ástmar Hannesson formaður Gæðingadómarafélag Landsambands hestamannafélaga og einn skipuleggjenda ráðstefnu um dómaramál sem fram fer 6. desember nk.
Á ráðstefnunni verður komið víða við, því auk Lárusar munu Sigurbjörn Bárðarson, Olil Amble, Guðlaugur Antonsson og Pjetur N. Pjetursson taka til máls. „Fyrirlesarar nálgast efnið hver út frá sínu sjónarhorni, bæði sem keppnisknapar og dómarar,“ segir Lárus sem vonast til að allir áhugasamir um keppni og dómaramál mæti á ráðstefnuna, sem mun hefjast kl. 19:00 í félagsheimili Fáks þriðjudaginn 6. desember nk. eins og áður sagði.
Einnig er fyrirhugað á nýju ári að halda fimm helga námskeið (föstudag og laugardag) á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskólans í samvinnu við dómarafélögin. „Námskeiðið snýst um að efla dómgæslu og gefa núverandi og verðandi dómurum kost á að bæta við sig þekkingu og menntun. Námskeiði verður tvíþætt; annarsvegar dómara hlutinn og einnig nám fyrir knapa sem hafa hug á að hefja keppni á hestum eða efla sig á keppnisvellinum og læra um undirbúning hesta fyrir keppni. Við verðum að þora að prufa ýmislegt og hafa alltaf hag hestamennskunnar í fyrirrúmi,“ segir Lárus á lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH