Nemendur í Hestafræðideild leggja á skeið og mæla mjólkursýru

  • 14. október 2020
  • Fréttir

Valdís Björk nemandi á Hestafræðideild mynd; Háskólinn á Hólum

Á Facebook síðu Háskólans á Hólum er eftirtektarverð frétt um mælingar mjólkursýru til að fá ákveðið mat á líkamlegu álagi á skeiðinu.
Í henni segir:
„Í vikunni í blíðskaparveðri í Hjaltadalnum voru nemendur á þriðja ári í Hestafræðideild að æfa sig að taka skeiðhesta Hólaskóla til kostanna. Blóðsýni voru tekin úr hestunum til að mæla mjólkursýru og fá þannig ákveðið mat á líkamlega álagið á skeiðinu. Hestarnir voru einnig með púlsmæla og GPS var notað til að mæla hraðann á skeiðinu. Nemendur kynnast þessum mælitækjum við þjálfun á skeiðhestunum meðal annars til að fá hlutlægt mat á líkamlega álagið.
Það er þekkt samkvæmt rannsóknum að á afkastamiklu skeiði nota íslenskir hestar umtalsverð loftfirrð efnaskipti og þá hleðst upp mjólkursýra í blóði.

Höskuldur Jensson tekur blóðsýni úr einum hestanna Emma Larson heldur í einn skólahestanna

Við mælinguna nægir að taka lítið blóðsýni (um 2 ml) úr hálsæð og blóðdropi er settur á mælistrimil sem er stungið í lítinn mæli (Lactate Pro 2) sem telur niður 15 sekúndur og gefur upp mjólkursýrumagnið. Mjólkursýran var mæld eftir síðasta sprett hjá hverjum hesti (af 2 eða 3 sprettum sem áttu að vera um 100 m hver) og kom í ljós að magnið var mjög mismunandi eftir hestum, en magnið verður ekki umtalsvert nema hesturinn skeiði af krafti. Það var Höskuldur Jensson dýralæknir sem tók blóðsýnin og Guðrún Stefánsdóttir kennari var honum og nemendum til aðstoðar við mjólkursýrumælingarnar. Það er Þorsteinn Björnsson reiðkennari sem er umsjónarmaður skeiðkennslunnar. Að þessu sinni voru nemendur í sjálfstæðri vinnu og sáust margir góðir skeiðsprettir og umtalsverð mjólkursýrumyndun. Meðaltalsgildi mjólkursýru var 8,6 mmól/L hjá öllum hestunum og hæsta gildið sem sást var 18,8 mmól/L.“

Emma Larson nemandi á 3.ári við Hestafræðideild Mynd: Háskólinn á Hólum

Þeir eru fallegir haustdagarnir í Hjaltadalnum mynd: Háskólinn á Hólum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link