Nemendur sýna afrakstur vetrarins

  • 20. desember 2012
  • Fréttir
Nemendur sýna afrakstur vetrarins

Nemendur á 2. ári hestafræðideildar Háskólans á Hólum skiluðu af sér tamningahrossum til eigenda síðastliðinn laugardag með því að sýna hrossin í reið bæði úti og inni. Aðaláherslan á 2. árinu er á tamningar og þjálfun sem skiptist í frumtamningar, grunnþjálfun og svo þjálfun. Skólinn sér um að útvega hrossin en hrossaræktendur víða um land leggja skólanum lið og senda gjarnan í tamningu á Hóla.

Að þessu sinni voru nemendur að skila af sér grunnþjálfunar og þjálfunarhrossum sem þeir höfðu verið að þjálfa síðustu 5 vikurnar. Sýndu þau vinnu í hendi á löngum taum með grunnþjálfunarhrossin og síðan í reið.

Grunnþjálfunarhrossum á að vera hægt að ríða nánast hvert sem er, en á önninni fara nemendur með þau m.a. í víðavangspróf þar sem þau þurfa að ríða yfir læki og í gegnum keilur í þúfum, hleypa á stökk upp brekku og fleira. Einnig eiga nemendur að geta unnið með hrossin í hendi á löngum taum án þess að hrossið hangi í og geta teymt þau hvert sem er á hesti, en þau taka einnig stöðupróf í því á miðri önn. Ekki er skylda að hrossin séu byrjuð að tölta eftir þennan áfanga, heldur er byrjunin á gangsetningu kennd, þ.e. safnað fet eða skrefið á feti stytt.

Þjálfunarhrossin geta verið mjög mismunandi, s.s. klárgeng, bundin, ógangsett eða þess háttar sem nemendur eiga að þjálfa og bæta. Í byrjun kemur úttektarmaður sem fer á bak hrossunum og metur hvað þurfi að bæta og svo í lok annar kemur sami aðilinn aftur og metur árangur nemanda á þjálfun hestsins. Á sýningunni sýndu nemendur svo afrakstur vinnu sinnar stolt og glöð með það þjálfunartímabil sem var að ljúka.

Næsta skilasýning er áætluð laugardaginn 23. febrúar nk. þar sem sýnd verða hross eftir nokkurra vikna frumtamningar eða grunnþjálfun. Allir eru velkomnir á skilasýningarnar en á þessum sýningum gefst gott tækifæri á því að sjá hvernig náminu og tamningarferlinu er hagað hestafræðideildina á Hólum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link