Nennir ekki lengur að járna óspennandi hross

  • 23. desember 2021
  • Fréttir

Ágúst og Prins frá Sauðanesi

Hrossabændur teknir tali - Sauðanes

Nú þegar líða fer að jólum ætlar Eiðfaxi að stytta okkur stundirnar og taka nokkra ræktendur landsins á tali sem eru í óðaönn að undirbúa komandi tímabil. Næsta hrossaræktarbú sem við kynnum til leiks er Sauðanes

 

Á Sauðanesi á Langanesi búa þau Ágúst Marinó Ágústsson og Steinunn Anna Halldórsdóttir ásamt börnum sínum Dagrúnu Sunnu Ágústsdóttur, Viðju Sóllilju Ágústsdóttur, Katrínu Sif Bjarnadóttur og Steinbirni Ágústssyni. Ágúst hefur verið að rækta hross kennd við Sauðanes í tæp 20 ár en jörðin er u.þ.b. 2.500 ha. “Ég hef vissulega verið að rækta hross frá barnæsku en þetta eru innan við 20 ár sem ég hef verið að rækta eitthvað af viti. Núna erum við með átta hryssur á húsi á fjórða og fimmta vetur og síðan er ég með tvo eldri reiðhesta. Úti stóðið er svo alls um 45 hross á okkar vegum,” segir Ágúst.

 

Prýði hefur reynst honum best

Ágúst hefur verið að fá fjögur folöld á ári þó stundum séu þau fleiri. “Opinbera talan er 4 folöld á ári en stundum hafa komið einhverjar merar bykkjur til viðbótar með folöld. Fyrstu aðalræktunarhryssurnar voru Minning frá Sauðanesi (8,24) og Prýði frá Ketilsstöðum (8,25). Undan þeim fékk sé sinhvora vindóttu hryssuna sem heita Sunna (8,16) og Sóllilja (8,61) og hafa þær verið allar í folaldseignum en Minning er nú dauð fyrir sex árum. Í sumar fóru svo tvær nýjar hryssur í folaldseign þær Rómantík (8,28) og Dögg (8,31), báðar fyrstu verðlauna hryssur undan Prýði,” segir Ágúst en Prýði hefur reynst honum best en hún hefur gefið sjö fyrstu verðlauna hross sem eru auðtamin. “Opin hross með mikla aðgengilega vekurð, góð gangskil og gott tölt líka,” bætir Ágúst við. Ágúst er einnig með Skinnbrók frá Sauðanesi í ræktun en hún er ósýnd undan Andvara frá Ey. “Hún hefur átt nokkur folöld og fer líklega í þann feril fyrir fullt og allt núna. Hún er eina klárhryssan okkar og er óhemju hágeng og rúm enda undan Óðsdóttur. Hún hefur mjög gott geðslag og var auðtamin og það glytti víða í níurnar fannst manni eftir góðan reiðtúr stundum. En henni lá óþarflega mikið á til að fara í gegnum öll sýningaratriðin sama daginn svo vel þætti svo við hættum bara að hugsa um það fljótlega,” segir Ágúst sem keppti á Skinnbrók í sumar í B-flokk og fóru þau í 8,40. “Ég tók hana inn í mars síðasta vetur eftir þrjú folöld. Hún hafði engu gleymt,” bætir hann við. 

 

Það getur verið langt að ferðast frá Sauðanesi í stóðhesta en Ágúst hefur þó verið duglegur að sækja sér nýtt blóð í ræktunina. “Trymbill frá Stóra-Ási var hjá okkur í sumar og fóru allar þessar hryssur undir hann nema Skinnbrók. Hún fór undir Vatnsleysu hest sem Lennon heitir. Hann fer mest á orðsporinu en það er líka gott í þröngum hópi. Til að bjarga okkur úr vandræðum fór Dögg undir bleikblesóttann ungfola frá Gunnarsstöðum. Þar eru mjög góð hross og er þessi foli undan hinum eina og sanna Ský frá Skálakoti og gæðingstöltaranum Tíbrá frá Minni-Völlum,” segir Ágúst en í sumar fékk hann undan Kná frá Vallholti, Hlý frá Garðshorni og Ský frá Skálakoti. 

 

Nennir ekki lengur að járna óspennandi hross

Á Sauðanesi er margt spennandi á járnum en Ágúst segist ekki lengur nenna að járna óspennandi hross. “Ég er með tvær á fimmta vetur undan Kjarki frá Skriðu, þær eru nýjárnaðar. Þær eru efnilegar og hágengar en ekki stefnt með þær nema bara á afleggjarann í vor. Alsæla frá Sauðanesi er í þjálfun en hún er líka á fimmta vetur og hlýtur að teljast til alls líkleg. Hún er fædd með flestar gangtegundir í lagi og jafnvægis góð og yfirveguð. Hún er undan Spuna og Sóllilju. Einnig er hryssa undan Spuna og Prýði á 4. Vetri og er verið að gera hana reiðfæra. Einnig jafngömul  hryssa undan Hring frá Gunnarsstöðum og Sunnu. Mjög skemmtilegar hryssur og gott að eiga við þær þótt ótamdar séu. Tvær hryssur á 4. Eru hér frá Brimnesi í Skagafirði undan gæðingnum Erpi frá Brimnesi. Þær eru rétt að verða reiðfærar og eru álitlegar,” segir Ágúst sem telur þetta verða hálfgerðan tryppa og tamninga vetur eins og vanalega. Fjórar hryssur frá Sauðanesi eru í tamningu og þjálfun hjá Reyni og Aðalheiði á Króki í Ásahreppi sem þykja ágæt efni. Ein af þeim er Silfurskotta frá Sauðanesi en hinar þrjár eru þær Ársól, Sæluvíma og Vindhviða en Sæluvíma og Vindhviða eru sammæðra Silfurskottu og keypti Reynir þær í sumar.  “Ég held ég verði að segja að Spunadæturnar og alsysturnar séu efnilegastar held ég, Alsæla og Ársól, Ársól er á Króki en hún var seld veturgömul danskri konu. 

 

Forsýningin á Silfurskottu hápunktur ársins

Silfurskotta er hæst dæmda sex vetra hryssa ársins en Ágúst ræktaði hana og er hún í eigu hans og Aðalheiðar og Reynis í Króki. “Forsýningin á Silfurskottu verður að teljast hápunktur ársins,” segir Ágúst en stefnan er tekin á Landsmót næsta sumar. “Ætli Silfurskotta sé ekki sú eina sem er í því ferli opinbert. En við erum ekki með neitt nema tryppi í þjálfun hér heima. Kannski verður eitthvað orðið gott í vor,” bætir Ágúst við aðspurður hvort stefnt sé með mörg hross á Landsmót. 

 

“Mér hefur fundist kynbótastarfið þróast vel síðustu ár t.d. Með ýmis útfærslu atriði til að leggja mat á þjálni og þar með að fá vísbendingar um hvernig geðslagið er í hrossunum. Þetta er nú samt orðið heldur flókið þegar það þarf að taka helming ferðanna í að útfæra tölt sýninguna. Einnig fékk maður á tilfinninguna að Elsa hefði lagt línurnar þannig að dómar væru ansi strangir sérstaklega við meðalhrossin og þau yngri,” segir Ágúst sem var nokkuð sáttur við það sem snéri að hans hrossum nema eitt atriði varðandi miðsumarsýningu á Dögg en ennþá á eftir að ljúka því máli. 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link