Niðurstöður frá Ístölti Austurlands
Skráningar voru rúmlega fimmtíu og var keppt í fimm flokkum. Dómarar á mótinu komu að norðan og voru þeir Magnús Bragi Magnússon og Vignir Sigurðsson.
Sigurvegari tölts T3 var staðarhaldarinn sjálfur Einar Kristján Eysteinsson á hryssu sem hann á með föður sínum Eysteini Einarssyni. Hryssan heitir Hekla frá Tjarnarlandi og er vel kunnug staðháttum í kringum Móavatn. Voru þau Einar og Hekla efst eftir forkeppni og héldu því í úrslitum þar sem þau hlutu í einkunn 7,17. Kepptu þau fyrir hönd Hestamannafélagsins Freyfaxa.
Sigurvegari B flokks var hin unga og efnilega Elín Ósk Óskarsdóttir sem enn keppir í unglingaflokki. Var hún á hryssunni Ísafold frá Kirkjubæ sem hún og afi hennar Pálmi Guðmundsson eiga í sameiningu. Elín og Ísafold komu frá Hornafirði og kepptu fyrir hestamannafélagið Hornfirðing. Hlutu þær í einkunn 8,76 og meðal annars 9,0 fyrir brokk og greitt tölt og 9,2 fyrir vilja. Glæsilegur árangur hjá ungum knapa.
Sigurvegari A flokks kom svo alla leið frá Dalvík og kepptu því fyrir hestamannafélagið Hring. Það var Guðröður Ágústsson á Svörtu Rós frá Papafirði sem er í eigu Freydísar Dönu Sigurðardóttur en þau voru einnig efst eftir forkeppni. Sigruðu þau A flokk með einkunnina 8,51.
Það er því óhætt að segja að farandverðlaunagripir hafi dreifst vel og jafnt yfir þá landshluta sem sáu sér fært að mæta og taka þátt, frá Hornafirði og til Dalvíkur.
Sigurvegari tölts T7 var Freyfaxa félaginn Diljá Ýr Tryggvadóttir á Skálmöld frá Rútsstöðum með einkunnina 6,75 en þær voru einnig efstar að lokinni forkeppni. Eigandi Skálmaldar er Ingibjörg Þórarinsdóttir. Í tölti T7 undir 17 ára mættu 5 unglingar með 6 skráningar. Gaman var að sjá hvað krakkarnir komu vel undirbúin og tilbúin til leiks. Eftir forkeppni leiddi Ída Mekkín Hlynsdóttir á Marín frá Lækjarbrekku 2 með einkunnina 7,15, þær bættu svo í og unnu flokkinn með einkunnina 7,37. Eigandi af Marín er Pálmi Guðmundsson og kepptu þær fyrir Hornfirðing. Til gamans má geta að þær Ída Mekkín og Marín leiddu B flokk að lokinni forkeppni með einkunnina 8.65. Það er nokkuð ljóst miðað við hestakost á ísnum að okkur er öllum óhætt að byrja að hlakka til þess að fá þessa knapa og hesta ásamt ‘ mörgum öðrum á Fjórðungsmót á Austurlandi 6.-9. júlí næst komandi á Stekkhólma.
„Við í stjórn Freyfaxa þökkum kærlega öllum þeim sem komu að mótinu á einn eða annan hátt. Aðstæður á Móavatni hefðu ekki getað verið neitt betri, veðrið var stillt þó kalt hafi verið og mikið af góðum hrossum. Við hlökkum til að sjá sem flesta við Móavatn að ári liðnu ef veðurguðirnir verða með okkur í liði og aðstæður leyfa,“ segir í tilkynningu frá stjórn Freyfaxa.
Niðurstöður frá mótinu hér fyrir neðan:

Guðröður og Svarta Rós
A flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Svarta Rós frá Papafirði Guðröður Ágústson 8,51
2 Þöll frá Strönd Guðrún Alexandra Tryggvadóttir 8,47
3 Paradís frá Gullbringu Einar Ben Þorsteinsson 8,46
4 Tvífari frá Skriðufelli Ragnar Magnússon 8,32
5 Sónata frá Hjarðartúni Magnús Fannar Benediktsson 8,08
6 Hrafnaklukka frá Stóra-Sandfelli 3 Snæbjörg Guðmundsdóttir 8,04
7 Þyrill frá Reyðarfirði Hans Kjerúlf 7,90
8 Haukur frá Lönguhlíð Hallfreður Elísson 7,73
A flokkur – Sérstök forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Svarta Rós frá Papafirði Guðröður Ágústson 8,39
2 Tvífari frá Skriðufelli Ragnar Magnússon 8,35
3 Paradís frá Gullbringu Einar Ben Þorsteinsson 8,34
4 Þyrill frá Reyðarfirði Hans Kjerúlf 8,29
5 Þöll frá Strönd Guðrún Alexandra Tryggvadóttir 8,28
6 Hrafnaklukka frá Stóra-Sandfelli 3 Snæbjörg Guðmundsdóttir 8,15
7-8 Haukur frá Lönguhlíð Hallfreður Elísson 8,11
7-8 Sónata frá Hjarðartúni Magnús Fannar Benediktsson 8,11
9 Trúr frá Garðabæ Jens Einarsson 7,97

Elín Ósk og Ísafold
B flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Ísafold frá Kirkjubæ Elín Ósk Óskarsdóttir 8,76
2 Dís frá Bjarnanesi Snæbjörg Guðmundsdóttir 8,67
3 Hrafney frá Hrafnagili Hans Kjerúlf 8,54
4 Freyja frá Tjarnarlandi Einar Kristján Eysteinsson 8,52
5 Loki frá Flögu Helgi Árnason 8,49
6 Freddi frá Sauðanesi Guðröður Ágústson 8,45
7 Marín frá Lækjarbrekku 2 Ída Mekkín Hlynsdóttir 7,55
8 Jökull frá Egilsstöðum 1 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir 3,17
B flokkur – Sérstök forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Marín frá Lækjarbrekku 2 Ída Mekkín Hlynsdóttir 8,65
2 Jökull frá Egilsstöðum 1 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir 8,62
3 Dís frá Bjarnanesi Snæbjörg Guðmundsdóttir 8,61
4 Ísafold frá Kirkjubæ Elín Ósk Óskarsdóttir 8,48
5 Freyja frá Tjarnarlandi Einar Kristján Eysteinsson 8,48
6 Hekla frá Tjarnarlandi Einar Kristján Eysteinsson 8,47
7 Loki frá Flögu Helgi Árnason 8,46
8 Hrafney frá Hrafnagili Hans Kjerúlf 8,42
9 Freddi frá Sauðanesi Guðröður Ágústson 8,35
10 Goði frá Hrafnagili Hans Kjerúlf 8,31
11 Óri frá Halakoti Jens Einarsson 8,25
12 Skýstrókur frá Strönd Björn Ólafur Úlfsson 8,24
13 Skálmöld frá Rútsstöðum Diljá Ýr Tryggvadóttir 8,21
14 Reynir frá Skriðufelli Ragnar Magnússon 8,16
15-16 Kostur frá Margrétarhofi Friðrik Snær Friðriksson 8,10
15-16 Dáð frá Sauðanesi Viðja Sóllilja Ágústsdóttir 8,10
17 List frá Holtsmúla 1 Kolbjörg Lilja Benediktsdóttir 8,04
18 Titill frá Hofsá Hallgrímur Anton Frímannsson 8,00
19 Brjóstbirta frá Sauðanesi Ágúst M Ágústsson 7,75
20 Hugleikur frá Skriðufelli Stefanía Malen Stefánsdóttir 7,70

Einar Kristján og Hekla
Tölt T3 – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Einar Kristján Eysteinsson Hekla frá Tjarnarlandi 7,17
2 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir Þöll frá Strönd 6,58
3 Ármann Örn Magnússon Skvísa frá Skógargerði 6,42
4 Björn Ólafur Úlfsson Skýstrókur frá Strönd 6,25
5 Stefán Hrafnkelsson Helmingur frá Gili 6,08
6 Hans Kjerúlf Dama frá Hrafnagili 5,92
Tölt T3 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Einar Kristján Eysteinsson Hekla frá Tjarnarlandi 6,65
2-3 Ármann Örn Magnússon Skvísa frá Skógargerði 6,25
2-3 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir Þöll frá Strönd 6,25
4 Björn Ólafur Úlfsson Skýstrókur frá Strönd 6,05
5-6 Stefán Hrafnkelsson Helmingur frá Gili 6,00
5-6 Hans Kjerúlf Dama frá Hrafnagili 6,00
7 Kolbjörg Lilja Benediktsdóttir List frá Holtsmúla 1 5,95
8 Ragnar Magnússon Reynir frá Skriðufelli 5,90
9 Eiríkur Bjarnason Máni frá Eskifirði 5,85
10 Magnús Fannar Benediktsson Sónata frá Hjarðartúni 5,50
11 Ragnar Magnússon Svarthöfði frá Skriðufelli 5,30

Diljá og Skálmöld
Tölt T7 – A úrslit – Fullorðinsflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Diljá Ýr Tryggvadóttir Skálmöld frá Rútsstöðum 6,75
2 Ríkey Nótt Tryggvadóttir Tvistur frá Árgerði 6,25
3 Melanie Hallbach Kredía frá Útnyrðingsstöðum 5,75
4 Ármann Örn Magnússon Tíbrá frá Egilsstaðabæ 5,62
5 Selma Björt Stefánsdóttir Sandur frá Gíslastöðum 5,38
Tölt T7 – Forkeppni – Fullorðinsflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Diljá Ýr Tryggvadóttir Skálmöld frá Rútsstöðum 6,65
2 Ríkey Nótt Tryggvadóttir Tvistur frá Árgerði 6,00
3-4 Melanie Hallbach Kredía frá Útnyrðingsstöðum 5,90
3-4 Ármann Örn Magnússon Tíbrá frá Egilsstaðabæ 5,90
5 Selma Björt Stefánsdóttir Sandur frá Gíslastöðum 5,75
6 Stefanía Malen Stefánsdóttir Hugleikur frá Skriðufelli 5,65
7 Ingibjörg Þórarinsdóttir Mói frá Varmalæk 5,15

Ída og Marín
Tölt T7 – Unglingaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ída Mekkín Hlynsdóttir Marín frá Lækjarbrekku 2 7,38
2 Elín Ósk Óskarsdóttir Sara frá Lækjarbrekku 2 6,88
3 Dalía Sif Ágústsdóttir Dýfing frá Felli 6,38
4 Viðja Sóllilja Ágústsdóttir Dáð frá Sauðanesi 5,50
5 Friðrik Snær Friðriksson Kostur frá Margrétarhofi 3,00
Tölt T7 – Unglingaflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ída Mekkín Hlynsdóttir Marín frá Lækjarbrekku 2 7,15
2 Elín Ósk Óskarsdóttir Sara frá Lækjarbrekku 2 6,90
3 Dalía Sif Ágústsdóttir Dýfing frá Felli 6,25
4 Friðrik Snær Friðriksson Kostur frá Margrétarhofi 5,75
5 Ída Mekkín Hlynsdóttir Brák frá Lækjarbrekku 2 5,25
6 Viðja Sóllilja Ágústsdóttir Dáð frá Sauðanesi 4,90
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH