Niðurstöður milliriðils

  • 28. júní 2012
  • Fréttir
Niðurstöður milliriðils

Niðurstöður úr milliriðli A-flokks gæðinga liggja fyrir. Enginn sló út Fláka frá Blesastöðum 1a eða Stakk frá Halldórsstöðum. Sigurður Sigurðarsson tók Fróða frá Staðartungu hins vegar til kostanna og uppskar 8,71 og er þriðji inn í A-úrslit. Þá hefur Atli Guðmundsson ekki látið deigan síga, þótt skeifa hafi dottið undan Frakk frá Langholti. Hann sýndi Sálm frá Halakoti nú undir lok riðilsins, sýning þeirra var glæsileg og uppskáru þeir 8,58 í einkunn og öruggt sæti í A-úrslitum. Auk hans fengu Grunnur frá Grund II, setin af Sigursteini Sumarliðasyni, og Dagur frá Strandarhöfði, setin af Stefáni Friðgeirssyni sömu einkunn og eru með þátttökurétt í A-úrslitum.

Í milliriðli voru samankomnir firnasterkir hestar, hver glæsisýningin rak aðra og fáum brást bogalistinn. Aðeins einn hestur lá ekki í skeiðsprettum milliriðla sem verður að teljast til tíðinda þegar mikil spenna er í loftinu.

Niðurstöður:

  1. Þórður Þorgeirsson Fláki frá Blesastöðum 1A 8,81
  2. Sigurbjörn Bárðarson Stakkur frá Halldórsstöðum 8,73
  3. Sigurður Sigurðarson Fróði frá Staðartungu 8,71
  4. Atli Guðmundsson Sálmur frá Halakoti 8,58
  5. Sigursteinn Sumarliðason Grunnur frá Grund II 8,58
  6. Stefán Friðgeirsson Dagur frá Strandarhöfði 8,58
  7. Sigurður Vignir Matthíasson Hringur frá Fossi 8,56
  8. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 8,56
  9. Reynir Örn Pálmason Greifi frá Holtsmúla 1 8,55
  10. Hinrik Bragason Sturla frá Hafsteinsstöðum 8,55
  11. Sólon Morthens Frægur frá Flekkudal 8,54
  12. Sigurður Vignir Matthíasson Máttur frá Leirubakka 8,53
  13. Hans Þór Hilmarsson Lotta frá Hellu 8,53
  14. Berglind Rósa Guðmundsdóttir Nói frá Garðsá 8,49
  15. Þorvar Þorsteinsson Stáli frá Ytri-Bægisá I 8,49
  16. Súsanna Ólafsdóttir Óttar frá Hvítárholti 8,48
  17. Eyjólfur Þorsteinsson Kraftur frá Efri-Þverá 8,47
  18. Tryggvi Björnsson Kafteinn frá Kommu 8,46
  19. Eyjólfur Þorsteinsson Máni frá Hvoli 8,44
  20. Magnús Bragi Magnússon Vafi frá Ysta-Mói 8,43
  21. Mette Mannseth Seiður frá Flugumýri II 8,41
  22. Guðmundur Björgvinsson Gustur frá Gýgjarhóli 8,39
  23. Guðmundur Björgvinsson Gjöll frá Skíðbakka III 8,38
  24. Vignir Siggeirsson Þröstur frá Hvammi 8,38
  25. Elvar Þormarsson Skuggi frá Strandarhjáleigu 8,32
  26. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Trostan frá Auðsholtshjáleigu 8,27
  27. Höskuldur Jónsson Svali frá Sámsstöðum 8,20
  28. Viðar Ingólfsson Már frá Feti 8,12
  29. Guðmundur Björgvinsson Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti 8,06
  30. Atli Guðmundsson Frakkur frá Langholti 0,00
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link