Nina Bergholtz FEIF reiðkennari ársins
Nina Bergholtz er reiðkennari ársins 2022 hjá FEIF en fyrir aðalfund FEIF fór fram netkosning þar sem kjósendur gátu valið um einn reiðkennara sem var tilnefndur af sínu aðildarlandi.
Umsögn Ninu frá FEIF er eftirfarandi:
Nina er 3. stigs reiðkennari, íþróttadómari, alþjóðlegur kynbótadómari FEIF og er með 25 ára reynslu í faginu. Hún hefur dæmt folöld og unghross á kynbótasýningum síðastliðin 20 ár. Nina hefur starfað sem kynbótadómari í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Austurríki, Hollandi og Bandaríkjunum auk þess sem hún er gæðingakeppnisdómari og hefur dæmt á mörgum sænskum meistaramótum og einnig á Landsmótum.
Nina hefur keppt fyrir hönd sænska landsliðsins, hefur tekið þátt í 25 sænskum meistaramótum og fjórum Norðurlandamótum. Auk þess að hafa verið reiðkennari, dómari og knapi á þá er hún hrossaræktandi sem hefur ræktað um 150 hross. Nina er mikill áhugamaður um íslenska hestinn og leggur mikið á sig í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendir. Í mörg ár var hún með reiðskóla á bænum sínum Himmelsrum, rétt fyrir utan Gamleby í Svíþjóð. Hún hefur í áratugi haldið reiðnámskeið og fyrirlestra um íslenska hrossarækt, víða um land.
Með tryggð sinni og víðtækri þekkingu á íslenska hestinum menntar Nina nemendur sína.
Hún hvetur og veitir nemendum sínum innblástur, alltaf með hagsmuni hestsins í huga. Skilningur á íslenska hestinum, sögu hans og útliti er áberandi hjá nemendum hennar. Hún er fyrirmynd fyrir hestaíþróttina.
Nina er 3. stigs reiðkennari, íþróttadómari, alþjóðlegur kynbótadómari FEIF og er með 25 ára reynslu í faginu. Hún hefur dæmt folöld og unghross á kynbótasýningum síðastliðin 20 ár. Nina hefur starfað sem kynbótadómari í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Austurríki, Hollandi og Bandaríkjunum auk þess sem hún er gæðingakeppnisdómari og hefur dæmt á mörgum sænskum meistaramótum og einnig á Landsmótum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH