Kynbótasýningar Níu hross með 9,5 fyrir fegurð í reið

  • 2. október 2023
  • Fréttir

Hersir frá Húsavík hlaut 9,5 fyrir fegurð í reið, sýnandi Teitur Árnason

Eitt alhliða hross hlaut 9,5 fyrir fegurð í reið í ár

Nú þegar kynbótasýningum árið 2023 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er fegurð í reið.

Ekkert hross hefur hlotið 10 fyrir fegurð í reið og það var engin undantekning á því í ár. Hins vegar hlutu níu hross 9,5 fyrir fegurð í reið. Til gamans má geta að sautján hross hlutu þá einkunn í fyrra.

Af þessum níu hrossum sem hlutu 9,5 fyrir fegurð í reið í ár er aðeins eitt sýnt með skeiði og það er hún Náttdís vom Kronshof sem hlaut þá einkunn á Heimsmeistaramótinu í Hollandi en hún var sýnd í flokki 7 vetra og eldri hryssna og hlaut hæstu hæfileikaeinkunn mótsins, 8,92.

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir fegurð í reið.

IS númer Hross Uppruni Sýningarland Sýnandi
IS2018184995 Aspar Hjarðartúni IS Þorgeir Ólafsson
IS2018182573 Húni Ragnheiðarstöðum IS Helga Una Björnsdóttir
IS2018135715 Hrafn Oddsstöðum I IS Jakob Svavar Sigurðsson
IS2015284741 Hlökk Strandarhöfði IS Ásmundur Ernir Snorrason
IS2015281975 Dússý Vakurstöðum IS Teitur Árnason
IS2015280469 Lýdía Eystri-Hól IS Árni Björn Pálsson
IS2015166640 Hersir Húsavík IS Teitur Árnason
DE2015234422 Náttdís Kronshof NL Frauke Schenzel
AT2015130101 Sigursson Hoftúni NL Pierre Sandsten-Hoyos

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link