Tíunda spurning í Jólameistara Eiðfaxa
![](https://eidfaxi.is/wp-content/uploads/2024/12/Screenshot-2024-12-24-at-15.54.02-800x448.png)
Það styttist óðum í jólin og því ekki seinna vænna en að hefja leika í Jólameistara Eiðfaxa sem er spurningakeppni þar sem lið Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum etja kappi saman. Munu liðin svara hinum ýmsu spurningum tengdum jólunum eða Meistaradeildinni.
Næstu daga munum við birta eina spurningu í einu og verður spennandi að sjá hvaða lið stendur uppi sem Jólameistarinn 2024.
Komið er að næstu spurningu en eftir níu spurningar er lið Sumarliðabæjar á flugi og leiðir enn með 9 stig.
Næst er spurt: Hvaða lið sigraði fyrst liðakeppni Meistaradeildarinnar?