Njálureið framundan um helgina

  • 18. ágúst 2026
  • Fréttir

Frá Njálureið árið 2025. Ljósmynd: Árni Sæberg

Skemmti- og sagnaferð á Njáluslóð 22.ágúst

Framundan er hópreið um Njáluslóðir laugardaginn 22. ágúst næstkomandi. Í fyrra tóku tæplega 100 manns þátt og riðu skikkjuklæddir í slóð Flosa og annarra brennumanna á leið til Bergþórshvols. Hermann Árnason leiðir reiðina sem fyrr og viðeigandi brot úr Njálu segja þeir Friðbjörn Garðarsson og Lárus Ágúst Bragason með sínum óborganlega hætti í hverjum áningarstað.

Lagt er upp frá Fljótshlíðarrétt og er tilvalið að geyma hestakerrur við Káragerði þangað sem leiðin liggur í lok dags. Haldið verður af stað um tvöleytið og er æskilegt að þátttakendur mæti til skráningar og skikkjuafhendingar á milli kl. 11:00 og 13:00. Gert er ráð fyrir ferðalokum eftir um fjögurra klst. reið um kl. 18:00 og verður þá sest að snæðingi og góðri skemmtan sem okkar annálaði Hlynur Snær Theodórsson mun leggja grunn að með söng sínum og gítarleik.

Sérstaða Njálureiðarinnar felst ekki síst í því að þátttakendur klæðast skikkjum til að komast í rétta andann, og er skikkja algjört skilyrði fyrir þátttöku. Þeir sem eiga skikkju frá því á síðasta ári fá afslátt af þátttökugjaldi en annars er hægt að kaupa nýja skikkju við skráningu.

Helstu upplýsingar
  • Dagsetning 22. ágúst 2026
  • Reiðleið Fljótshlíðarrétt – Káragerði (ca. 20 km)
  • Leiðangursstjóri Hermann Árnason
  • Sagnamenn Lárus Bragason og Friðbjörn Garðarsson
  • Verð (með eigin skikkju) 10.000 kr.
  • Verð (með nýrri skikkju) 15.000 kr.

Innifalið í verði er reiðin sjálf, sagnamennska, matarveisla og skemmtun.

Skráning fer fram á nýrri heimasíðu Njálufélagsins og nálgast má upplýsingar með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link