Nokkur mikilvæg atriði

  • 30. júní 2018
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Spennan magnast og það styttist í að keppni á landsmóti hefjist! Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar sem vert er að hafa í huga:

Spennan magnast og það styttist í að keppni á landsmóti hefjist! Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar sem vert er að hafa í huga:

– Það verður haldinn knapafundur í reiðhöllinni í Víðidal, inni í reiðsalnum, kl.10 á sunnudaginn. Hvetjum alla keppendur til að mæta! Farið verður ítarlega yfir málefni sem snúa að mótssvæðinu, keppni og skoðunum. 

– Gæðingavöllurinn verður lokaður frá kl.10:00-12:00 á sunnudaginn. Keppni hefst svo kl.12:00. 

– Það verður ítarleg méla- og fótaskoðun. Hófar verða mældir, járningar skoðaðar, mélaskoðun og hlífar vigtaðar. Fótaskoðun opnar klukkutíma fyrir keppni. Hægt er að koma áður en riðið er í braut og biðja um álit. Allir eru skyldugir til að fara í fótaskoðun að keppni lokinni. Skoðunin fer fram af Járningamannafélagi Íslands. 

– Heilbrigðisskoðun „Klár í keppni“ fer fram í reiðhöllinni hjá Sigurbirni Bárðarsyni, staðsett í C-tröð. Sjá nánari tímasetningar á heimasíðu landsmóts – www.landsmot.is – knapar – heilbrigðisskoðun. Biðjum við knapa og aðstandendur að reyna að fara eftir tímasetningum skoðuninnar eins og hægt er.

– Aðkoma keppenda á mótssvæðið er við Selásbraut/Þverás (fyrir ofan Reiðhöllina). Þar verða ítarlegar vegmerkingar. Keyrt er inn í Traðirnar  hesthúsahverfið og umferð fer um B-tröð. Ef ætlað er að fara niður í Faxaból hestahúsahverfið þá er keyrt áfram niður Brekknás eftir ítarlegum vegmerkingum þar. 

– Búið er að birta hollaröðun í keppnisdagskrá gæðingakeppninnar.

– Rásröðun kynbótahrossa er komin inn á heimasíðu landsmóts – www.landsmot.is – knapar – ráslistar

– Sýningarstjórar kynbótasýninga verða klárir í hófamælingar sunnudaginn 1.júlí við heilbrigðisskoðun „Klár í keppni“ fyrir kynbótahrossin. Fer fram í reiðhöll í C-tröð. 

Bestu kveðjur / Best regards

Þórdís Anna Gylfadóttir

Landsmót hestamanna 2018

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link