Norðurlandamótið hefst á morgun
Norðurlandamótið hefst á morgun í Herning í Danmörku. Þátttökuþjóðirnar eru sex talsins en það eru auk Íslands, Svíþjóð, Danmörk, Færeyjar, Finnland og Noregur. Keppt er íþrótta-, gæðingakeppni og skeiðgreinum í flokki fullorðinna, ungmenna og unglinga.
Dagskrá mótsins liggur nú fyrir og hana má nálgast með því að smella hér. Eins og Hekla Katharina, landsliðþjálfar U-21 árs liðs íslands, sagði í viðtali við Eiðfaxa eru keppendur Íslands staðráðnir í að standa sig vel.
Á morgun verður forkeppni í B-flokki og unglingaflokki í gæðingakeppni og fjórgangi, fimmgangi í íþróttakeppni. Síðasta grein kvöldsins verður svo gæðingaskeið þar sem fyrstu Norðurlanda meistararnir verða krýndir.
Eiðfaxi mun fylgja mótinu eftir og flytja af því helstu fréttir.
Mótið er sýnt beint á Alendis og má fylgjast með niðurstöðum með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson