Norðurlandamót Norðurlandamótið hefst á morgun

  • 3. ágúst 2026
  • Fréttir

Landslið Íslands á Norðurlandamóti árið 2022. Ljósmynd: Stein Larsen

Allt í beinni á EiðfaxaTV og umfjöllun á vefnum

Norðurlandamótið í hestaíþróttum hefst á morgun, þriðjudaginn 4.ágúst. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV og um það verður fjallað á vef Eiðfaxa. Þá er að ráslista og lifandi niðurstöður að sjálfsögðu aðgengilegar á snjallforriti HorseDay.

Fyrsta keppnisdaginn fer fram forkeppni í öllum flokkum gæðingakeppninnar og hefst dagskrá klukkan 09:00 að staðartíma í Svíþjóð sem er klukkan 07:00 í fyrramálið að íslenskum tíma.

Fyrsti íslenski knapinn á völlinn verður Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Dyggi från Stummelbol en þau eru fulltrúar Íslands í unglingaflokki í gæðingakeppni. Nánar má kynna sér landsliðið okkar með því smella hér fyrir fullorðna og hér fyrir yngri flokka.

Dagskrá þriðjudagur (íslenskur tími):

Keppni hefst klukkan 07:00

Unglingaflokkur
B-flokkur ungmenna
Hádegishlé
B-flokkur
A-flokkur ungmenna
A-flokkur

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link