Notkunarstaðir Þrists 2014
Mistök voru gerð í útgáfu Stóðhestablaðsins og þar voru notkunarstaðir Þrists frá Feti rangir.
Réttar upplýsingar eru:
Húsnotkun: Hæðarendi 1-3, Kjóavöllum, Kópavogi. Upplýsingar og pantanir hjá
Huldu [email protected] og 893 2028.
Fyrra gangmál: Akurey, Vestur-Landeyjum. Upplýsingar og pantanir hjá Huldu
[email protected] og 893 2028.
Seinna gangmál: Austurland á vegum Hr.Aust. Upplýsingar og pantanir hjá
Jósef Valgarð [email protected] og 863 5215.
Þristur er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og hefur reynst farsæll og
frjósamur kynbótahestur. Fjöldi afkvæma hans hefur vakið athygli á keppnis-
og kynbótabrautinni.
Um hann segir m.a. í dómsorðum til heiðursverðlauna: „Þristur gefur háreist
og prúð hross með úrvals tölt, góðan vilja og háan fótaburð.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH