Notuð járningaáhöld í tollinum
Mál Valdimars Bergstað, sem fyrir skömmu flutti til landsins notuð reiðtygi í bíl sem einnig var ataður hestamóðu, er ekki einsdæmi. Tollurinn í Reykjavík gerði í haust upptæk notuð járningaáhöld sem íslenskur járningamaður hafði sent sjálfum sér í pósti eftir vinnuferð til útlanda. Í kassanum var einnig járningasvunta úr leðri, reiðtygi og fatnaður.
Guðni Sigmundsson, yfirmaður hjá tollinum, segir að þessi mál séu ekki einsdæmi. Notið reiðtygi og reiðfatnaður finnist við farangursleit á Keflavíkurflugvelli nokkrum sinnum á hverju ári. Það er því ljóst að pottur er víða brotinn í þessum efnum. Grunsemdir um ógætilega hegðun hestamanna á við gild rök að styðjast.
Ekki fékkst uppgefið hver er eigandi umræddra járningaáhalda. Málið hefur verið sent til lögreglu líkt og önnur mál sem brjóta í bága við lög og reglur. Fleiri myndir af umræddu góssi má sjá HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári