Notuð reiðtygi gerð upptæk í Norrænu
Notuð reiðtygi voru gerð upptæk í hestakerru í Norrænu.
Hestakerra með talsverðu magni af notuðum reiðtygjum var gerð upptæki í ferjunni Norrænu fyrir nokkrum dögum. Sótt hafði verið um leyfi fyrir innflutning á kerrunni, sem er ný. Við eftirlit kom hins vegar í ljós að í henni voru notuð reiðtygi, sem stranglega bannað er að flytja til landsins.
Eigandi kerrunar og reiðtygjanna mun vera erlend kona sem er að flytja til landsins. Hún mun vera í sambandi við íslenskan hestamann en ekki hafa fengist upplýsingar hvar á landinu þau búa né hvort þau reka hestatengda starssemi. Reiðtygjunum verður eytt en eigandi kerrunnar mun væntanlega fá hana afhenta eftir að hún hefur verið sótthreinsuð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH