Notum endurskinsmerki!
Nú eru stóð-og fjárréttir í algleymingi víðsvegar um landið. Fyrstu réttir hófust í byrjun september og…
þeim síðustu lýkur í byrjun október.
Landssamband hestamannafélaga vill hvetja hestamenn og aðra gangnamenn að fara varlega og nota endurskinsmerki. Sérstaklega nú þegar dagsbirtan fer minnkandi og rekstrar dragast fram í myrkur. Með því að nota endurskinsmerki má koma í veg fyrir stórslys á mönnum og skepnum. Förum varlega.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH