Nú er að koma að leiðarlokum, og nýr kafli að hefjast

  • 29. október 2021
  • Fréttir
Föstudagspistill Hinna Sig

Föstudagspistillinn þessa vikuna er um að breyta til, smá framhald á þeim sem birtist í síðustu viku.

Að kenna og miðla upplýsingum og þekkingu er fyrir mig besta starf í heimi, no question about it.

Ég hef alla tíð haft mikla ástríðu fyrir kennslu, þjálfun og menntamálum, og hef undanfarin tæp 20 ár eytt megninu af mínum vinnutíma í að kenna reiðmennsku og knapaþjálfun, og í að læra allt sem ég mögulega get um efnið. Ég elska að spá í það hvernig ég get miðlað upplýsingum sem best, tjá mig um efni reiðmennskunnar eða hugaþjálfunar og spá í það á hvaða hátt er best að kenna svo góður árangur sé því sem næst tryggður.

Ég held að á þessum tíma hafi ég alveg lagt mig þannig fram við að verða góður kennari að ég vill telja mig vera fagmann í því. Ég er kennari, og ég fílaða í botn.

Reiðmaðurinn

Árið 2016 tók ég við starfi sem umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Lbhí af vini mínum Heimi Gunnarssyni sem var þar á undan mér.

Reiðmaðurinn er breitt og öflugt nám í hestamennsku sem Reynir heitinn Aðalsteinsson er upphafsmaður að, og hefur á nokkrum árum orðið að risastóru afli í hestamennskunni á Íslandi.

Námið hefur verið haldið um allt land, og við höfum verið lánssöm og haft stóran hóp af frábæru fólki með okkur gegnum tíðina.

Á þessum árum sem ég hef starfað við Reiðmanninn hefur námið vaxið mikið, og við sem höfum staðið vaktina hjá Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans, ég, Gunnar Reynisson og Gurra fyrrverandi endurmenntunarstjóri höfum brallað ýmislegt skemmtilegt, lærdómsríkt og spennandi á þessum tíma. Og það hefur oft verið í mörg horn að líta hjá okkur.

Mín stefna þegar ég kom inn í Reiðmanninn var að halda áfram að stækka námið, gera það enn aðgengilegra fyrir sem allra breiðastan hóp hestafólks, meira einstaklingsmiðað á verklegum vinnuhelgum og á sama tíma halda í gæði og gildi þau sem Reynir heitinn stóð fyrir með því að ýta þessu námi úr vör.

Meðfram því að halda í hugsjón Reynis um aðgengi að námi í hestamennsku og miðlun þjálfunaraðferða með eðli hestsins, velferð og forsendur hans í huga, hef ég líka reynt að halda á lofti eigin gildum og sjálfsagt litað námið heilmikið með því. Ég hef gert knapaþjálfun, hugarþjálfun og kannski helst af öllu samskiptaþjálfun knapa við hestinn sinn mjög hátt undir höfði, og á sama tíma reynt að koma sem dýpstum skilningi á hinum ýmsu atriðum þjálfunar, líkamsbeitingar, æfinga og þar fram eftir götum að hjá nemendum okkar.

Ég geng stoltur frá borði, ég hef á þessum tíma fylgt fjölda fólks gegnum námið bæði sem kennari í mörgum hópum, og svo sem prófdómari og umsjónarmaður.

Ég hef notið forréttinda með því að vinna með mörgum af flinkustu reiðkennurum Íslands sem hafa komið að náminu og allir haft heilmikið til námsins að bera. Bæði ungum kennurum sem eru á kafi í sínum keppnisferli í fremstu röð og eldri gamalreyndum refum í bransanum. Ég hef unnið með frábærum endurmenntunarstjóra hjá Lbhí, henni Gurru sem hefur borið ótrúlegar byrðir í umsýslu deildarinnar gegnum tíðina, og án hennar hjálpar sem hefur stutt Reiðmanninn öll þessi ár hefði þessi saga aldrei orðið til. Gurra er nú líka farin á önnur mið, og ég vill nota tækifærið og þakka henni sérstaklega fyrir frábært samstarf gegnum tíðina.

Ég held að ég geti fullyrt að það er ekkert nám í reiðmennsku fyrir hinn almenna hestamann sem hægt er að bera saman við Reiðmanninn eins og menntakerfið okkar lítur út í dag.

Markmiðið okkar í Reiðmanninum hefur ætíð verið skýrt, að áhugamaður í hestamennsku geti riðið hesti sínum í góðu jafnvægi og með léttleika á öllum gangtegundum, látið fara fallega á stoltum, mjúkum og lærðum hesti, og hafi kunnáttu og þekkingu til þess að koma sér og hesti sínum þangað með skipulögðum hætti.

Ég greip þetta tækifæri glaður og stoltur á sínum tíma. Að fá að bera ábyrgð á, og þróa áfram langtímanám í reiðmennsku og knapþjálfun er eitthvað sem fyrir mér var geggjað tækifæri. Að fá að kenna og á sama tíma læra um skipulag, rekstur námsins, bóklega og verklega hlið kennslunnar, fara yfir umsóknir, innrita í námið, dæma próf, útskrifa úr náminu, skipuleggja stundatöflur, tímatöflur í hverri vinnulotu og kynnast alveg heilum haug af áhugasömum nemendum Reiðmannsins hefur kennt mér ótrúlega mikið.

Og það er alveg satt sem sagt er um hestamennsku og reiðmennsku, að eftir því sem við lærum meira því betur veit maður hversu lítið maður í raun kann. Og kennslan er engin undantekning á þeirri reglu, því hver nemandi og hver hestur er nýtt viðfangsefni til þess að miðla til, og allir kenna öllum eitthvað, svo mikið er víst.

Nú er ég að hefja minn síðasta mánuð í starfi umsjónarmanns Reiðmannsins. Er bæði glaður og leiður, spenntur og pínu kvíðinn að skilja við verkefnið sem hefur tekið stóran hluta af mínu lífi undanfarin ár.

Ég trúi og held að Reiðmaðurinn hafi burði til þess að halda áfram að vaxa og dafna, fagmennskan að halda áfram að aukast og ég óska hverjum einasta kennara og nemanda sem eru í náminu virkilega velfarnaðar í framhaldinu og ég fylgist með af hliðarlínunni af áhuga.

Hjá mér og minni fjölskyldu tekur við nýr kafli. Ég held áfram að beita mér í menntamálunum af öllu hjarta því þar brennur minn logi sem allra best, og ég veit fátt skemmtilegra og betra í starfi mínu en að hjálpa knöpum við að þróa færni sína, kunnáttu og getu á hestbaki, skipuleggja námið, miðla nýrri þekkingu og vera þátttakandi í þroskaferli hesta og knapa um allt.

Ég mun líka halda áfram að stækka við mig í fyrirlestrahaldi, ráðgjöf og þjónustu í hugarþjálfun og að styðja við iðkendur í hinum ýmsu íþróttum og starfsfólki hinna ýmsu fyrirtækja í því að ”vera best þegar á reynir”.

Takk fyrir mig nemendur, samkennarar, reiðhallarhaldarar, hestamannafélög og þeir sem ég hef unnið með í gegnum tíðina við Reiðmanninn.

Við sjáumst á nýjum vettvangi

Góða helgi

Rock on, Hinni Sig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link