„Nú förum við að ýta við þessu”

  • 4. ágúst 2023
  • Fréttir

Fjalladís frá Fornusöndum, Elvar Þormarsson og Viðar Ingólfsson

Staðan tekin á hrossum og knöpum í íslenska landsliðinu í Oirschot.

Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi hefst á þriðjudaginn á sýningu kynbótahrossa og keppni í gæðingaskeiði en þá strax kemur í ljós hver verður heimsmeistari í þeirri grein. Þar eiga Íslendingar tvo sterka fulltrúa þá Elvar Þormarsson á Fjalladís frá Fornusöndum og Benedikt Ólafsson á Leiru-Björk frá Naustum III en gæðingaskeiðið er þeirra aðalgrein á mótinu.

Hestar og knapar komu til Oirschot í byrjun vikunnar og bjallaði blaðamaður Eiðfaxa í Elvar og tók stöðuna á liðinu.

Elvar var einn af þeim sem tók á móti hrossunum þegar þau lentu í Liege en samkvæmt honum gekk ferðalagið vel. “Ferðalagið með hrossin gekk mjög vel og það var gaman að sjá þetta og koma að vélinni þegar verið var að taka þau af. Það kom mér á óvart hvað hrossin eru mikið slök og róleg.”

“Það fer frábærlega vel um okkur. Við erum á geggjuðu hóteli og aðstaðan er mjög góð fyrir hrossin á svæðinu. Það er búið að vera svolítil rigning og svona en samt allt innan marka. Það truflar kannski aðeins þá sem eru að setja upp mótið en það er erfitt að koma vörubílum á svæðið svo það er einhver töf á uppsetningu mótsins en það mun klárast í tæka tíð held ég,” segir Elvar sem telur veðrið þó hafa haft góð áhrif á hrossin því þetta sé lítil breyting fyrir þá.

“Móralinn í liðinu er frábær. Ég þekkti marga fyrir en það er gaman að kynnast hinum. Góð samstaða í hópnum og ofboðslega skemmtilegir kakkar sem maður fær að vera með hérna. Öll hross eru heil en það kom smá babb í bátinn með Árna Björn. Hann datt mjög óheppilega, ekki af baki, og meiddi sig á hné og hefur verið að hvíla sig en síðustu fréttir af honum eru að þetta er á réttri leið. Sem betur fer ekkert slitið né brotið” segir Elvar.

Þjálfarar liðsins, Sigurbjörn Bárðarson og Hekla Katharína Kristinsdóttir, komu út í gærkvöldi og var fyrsti liðsfundur tekinn í gær. Völlurinn opnar fyrir æfingar í dag. “Þetta er fyrsti dagurinn sem við ætlum að ríða eitthvað annað en fet. Við höfum verið að taka því rólega enda ekkert stress. Hrossin hafa öll verið í mikilli þjálfun þannig að við erum bara búin að vera í rólegheitum en nú förum við að ýta við þessu.”

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link