Nú vantar aðeins herslumuninn!
Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum er í gangi fjáröflun til að reisa megi Höskuldi Eyjólfssyni á Hofsstöðum verðugan minnisvarða…
Honum er ætlaður staður við hrossagerði sem hlaðið hefur verið í brekkunni við kirkjuna í Reykholti og til stendur að nefna Höskuldargerði. Ráðgert er að afhjúpa bautastein og vígja gerðið 17. júní 2011.
Páll Guðmundsson listamaður í Húsafelli hefur tekið að sér að höggva í stein mynd af Höskuldi, en jafnframt verður festur á steininn eða við hann minningarskjöldur.
Það er Guðlaugur Óskarsson sem stendur fyrir þessu verkefni og segir hann að verkefnið sé að falla í góðan jarðveg og mikill áhugi sé á þátttöku í því. Nú vanti aðeins herslumuninn.
Þeir sem styðja verkefnið með framlagi kr.5000.- fá DVD disk sem Guðlaugur lét gera í sumar en diskurinn hefur að geyma video myndir af Gísla syni Höskuldar á gæðingi sýnum Hauki frá Hrafnagili 29 vetra gömlum og af Ingimar Sveinssyni á Pílatusi sínum 26 vetra.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Guðlaug með tölvupósti eða hringt í hann. [email protected] – Sími: 861 5971.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH