Nútíma hestgerðin holdi gædd og hinn klassíski íslenski gæðingur
Krókur frá Ytra-Dalsgerði er nú til afnota í sæðingum í Sandhólaferju en hann var í þriðja sæti í flokki fimm vetra stóðhesta á nýafstöðnu landsmóti á Vindheimamelum með 8,43 í aðaleinkunn…
Krókur er fágætur hestur að stærð og glæsibrag, hann er 149 cm á herðar og 150 á lengd og er með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, samræmi og prúðleika og 8,5 fyrir bak og lend, fótagerð og hófa og hvergi undir 7,5 í sköpulagi. Hann er fjölhæfur, rúmur og lyftingarmikill, viljugur, næmur og þjáll í lund. Hann hlaut í dómi á landsmótinu 8,5 fyrir tölt, hægt tölt, brokk og skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið og bætti sig stöðugt á sýningum mótsins.
Krókur er þannig í senn fulltrúi hins klassíska íslenska gæðings og nútima hestgerðarinnar holdi gæddrar. Að honum stendur enda öflug ræktun, faðir hans Sleipnisbikarshafinn Gári frá Auðsholtshjáleigu er þekktur alhliða gæðingur og tímamótahestur í kynbótum á sköpulagi og móðirin; Hnoss frá Ytra-Dalsgerði, er dóttir Safírs frá Viðvík og ber í sér afar sterka erfaþætti frá honum en þangað sækir Krókur sterka þætti í eðli sínu og útliti, s.s. fágæta lundprýði og einstaklega fagra makkalínu sem nýtist mjög vel í reið. Hnoss er með 1. v. og landsþekkt skeiðhryssa, m.a. Íslandsmeistari í 250 m skeiði árið 2001. Bestu tímar: 22,0 sek. í 250 m skeiði og 7,4 sek. í 100 m flugskeiði. Í móðurættinni er að auki að finna þekkt hross úr 100 ára ræktunarsögu hrossanna frá Ytra-Dalsgerði, s.s. Hrafnhildi frá Ytra-Dalsgerði sigurvegara eldri hryssuflokks landsmótsins á Þingvöllum 1958 og fjórðungsmótsins á Sauðárkróki 1959 og Þyt frá Ytra-Dalsgerði sem hlaut 1. verðlaun 4 vetra á landsmótinu 1958 og 1. verðlaun f. afkvæmi á landsmótinu á Hólum 1966.
Allar nánari upplýsingar um notkun á Króki er að finna á heimasíðunni: http://sandholaferja.is/ en þar hefur þó misritast að Krókur komi í Sandhólaferju eftir Íslandsmót en átt er við landsmót enda er Krókur mættur, sjá einnig e-mail: [email protected] og sími 893 0698 (Jakobína) og 661 9112 (Guðmar). Upplýsingar veitir einnig Kristinn Hugason í síma 891 9879 og í e-mail [email protected]
Folatollurinn hjá Króki með öllu þ.m.t. sæðingu o.þ.h. og vsk er kr. 150.000,-
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH