Framtíð gæðingakeppninnar í mótun?
Gæðingadómarar á Fjórðungsmóti árið 2019
Sjö manna vinnuhópur hefur verið skipaður til þess að skoða kosti og galla þess að gæðingakeppnin og keppnisgreinar hennar verði teknar inn í regluverk FEIF. Hingað til hefur gæðingakeppnin og regluverk hennar heyrt undir Landssamband hestamanna.
Hópnum er ætlað að greina helstu álitaefni og leggja fram tillögur að næstu skrefum. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili minnisblaði fyrir lok janúar 2027.
Ólafur Árnason er formaður hópsins og annar tveggja fulltrúa Íslands en auk hans sitja; Jón Þorberg Steindórsson, Will Covert fyrir hönd FEIF, Alexander Federov frá Þýskalandi, Lena Andersen frá Svíþjóð, Lisa La Cor Júlíusdóttir frá Danmörku og Torgeir Strom frá Noregi.
Hugmyndin um að gæðingakeppni heyri undir FEIF er ekki ný af nálinni, að sögn Ólafs ná gögn um málið að minnsta kosti aftur til ársins 2007. Áhugi á gæðingakeppni hefur aukist smám saman erlendis, meðal annars á Norðurlöndunum og sérstaklega í Svíþjóð. Verkefni hópsins er að meta hvaða kosti og galla það hefði í för með sér að gæðingakeppni fengi skýra stöðu innan FEIF, greina mögulegar áskoranir og skoða hvaða útfærslu slíkt fyrirkomulag krefðist.
Ólafur telur aukna útbreiðslu gæðingakeppni jafnframt geta skapað fleiri tækifæri fyrir íslenska hestinn á alþjóðavísu, meðal annars fyrir ræktendur, knapa, reiðkennara, dómara og mótshaldara.
Halda þarf í sérstöðu
Eitt helsta viðfangsefni hópsins verður hvernig íslenskt regluverk gæðingakeppninnar fellur að regluverki FEIF. Ólafur leggur áherslu á að varðveita þurfi kjarna keppnisformsins og þann skýra mun sem er á gæðingakeppni og íþróttakeppni. Gæðingakeppnin byggi á hugmyndinni um gæðinginn sjálfan, vilja og eðlisgæði hestsins, fegurð í reið og samspil hests og knapa.
Ein helsta áskorunin verði að skapa sameiginlegan skilning milli landa á því hvað felist í hugtakinu „gæðingur“ og hverju sé leitað eftir í keppninni. Þar telur Ólafur fræðslu mikilvæga, bæði fyrir dómara, mótshaldara, reiðkennara, knapa og þjálfara.
Dómgæslan verður einnig til skoðunar. Hér á landi eru tvö stig gæðingadómara, héraðsdómarar og landsdómarar, en í íþróttakeppni er einnig alþjóðlegt dómarastig. Verði gæðingakeppni hluti af FEIF-kerfinu þarf meðal annars að skoða hvort koma eigi á sérstakri fræðslu og samræmingu eða alþjóðlegum réttindum fyrir gæðingadómara.
Íslenskir landsdómarar dæma nú þegar á Norðurlandamótum og meistaramótum erlendis. Ólafur telur að vinnan geti styrkt stöðu íslenskra gæðingadómara enn frekar og skapað möguleika á alþjóðlegri viðurkenningu á reynslu þeirra og þekkingu.
Heimsmeistaramót síðar meir?
Gæðingakeppni er þegar hluti af Norðurlandamóti íslenska hestsins. Ólafur telur að alþjóðleg meistaramót eða jafnvel sérstakt heimsmeistaramót í gæðingakeppni geti orðið eðlilegt framhald til lengri tíma. Fyrst þurfi þó að móta skýra umgjörð, sameiginlegan skilning og traust regluverk.
Aukin útbreiðsla má þó, að hans mati, ekki verða til þess að mörkin milli gæðingakeppni og íþróttakeppni verði óskýr.
„Við megum ekki láta greinarnar renna saman í eitt. Þess í stað þurfum við að skilja skýrt á milli þeirra og varðveita þær áherslur sem gera gæðingakeppnina sérstaka.“
Næstu mánuðir fara í vinnu hópsins og gert er ráð fyrir að tillögur liggi fyrir í lok janúar 2027.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Fáki