Ný hestavöruverslun
Ný hestavöruverslun Hestar og Sport, hefur verið opnuð í verslunarmiðstöðinni Kjarnanum í Mosfellsbæ.
„Þar má finna allt það helsta fyrir hestasportið, og sitt hvað í hesthúsið. H&S flytur inn gæða undirburð frá Englandi og ýmislegt skemmtilegt frá Bandaríkjunum, eins og hinar frábæru Sticky Seat reiðbuxur. H&S tekur notaða hnakka í umboðssölu og er í samstarfi við söðlasmið um viðgerðir.H&S selur einnig Aftureldingar íþróttavörur frá Errea og gæludýrafóður frá Arion. Til að byrja með er verslunin opin frá kl. 14-18 alla virka daga, og alltaf heitt á könnunni. Eigendur verslunarinnar eru Guðríður og Björn á Þúfu í Kjós,“ segir í tilkynningu frá eigendum Hesta og Sports.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH