Ný keppnisgrein – „Hestamennska FT“-

  • 11. febrúar 2011
  • Fréttir
Ný keppnisgrein - "Hestamennska FT"-

Eiðfaxi kynnti til leiks nýja keppnisgrein sem væri í smíðum. Hér á eftir fylgir lýsing um eðli keppninnar:

Hugmyndin á bak við keppnina er að hafa góð áhrif á hestamennsku og reiðmennsku á íslenskum hestum. Keppnisgreinin á að hafa gott samspil manns og hests í öndvegi. Í brennidepli á að vera vel og rétt þjálfaður hestur og góð hesta- og reiðmennska.

Í þessari keppninni verða grundvallaratriðin sem skipta meiru máli en markmiðin. Virðing og vinsemd gagnvart hestinum er aðalatriði. Um er að ræða keppnisgrein þar sem samskipti og samspil manns og hests á að byggjast á trausti, skilningi og virðingu fyrir hestinum, að hesturinn sé sáttur, stoltur og glaður. Hann sé fús með manninum og vilji vera hjá honum. Mikilvægt er að hesturinn leggi sig fram fyrir manninn af fúsum og frjálsum vilja. Hesturinn á að vera rólegur, sjálfsöruggur og treysta knapanum greinilega. Hesturinn á að vera sveigjanlegur, sterkur, í jafnvægi og kunni að bera knapann. Mikið atriði er að hestinum líði vel í keppninni og að hann  skilji og samþykki ábendingar knapans. Reiðmennskan einkennist af mýkt og léttleika.

Gangtegundirnar verða að vera hreinar, reglubundnar og fjaðurmagnaðar. Virkni í afturfótum skapar virkni í baki sem leiðir af sér fjaðurmagn í  hreyfingum. Knapinn fylgi hestinum og allar ábendingar séu sem næst ósýnilegar. Hesturinn þarf í öllu að samþykkja leiðtogahlutverk knapans og sæki fram kátur og glaður hverja þá leið sem hann vill fara.                                                                                  

Í keppninni verður að sýna fet, brokk, tölt og stökk. Skeið er ekki skylduatriði en það má sýna skeið þegar vallaraðstæður leyfa og ef völlur er 60 metrar að lengd eða lengri, enda er það útfærslan, þ.e. niðurtaka, snerpa og niðurhæging sem skipta mestu máli hér.  Gangtegundirnar skulu vera hreinar og rúmar. Sýna verður gangtegundir bæði á beinni og beygðum leiðum (nema skeið) Það er ekki nægilegt að sýna gangtegund í æfingu. Skiptingar þ.e. gangskiptingar og hraðabreytingar skipta miklu máli. Áríðandi er að sýna fjölbreyttar æfingar sem nýtast við þjálfun íslenska hestsins. Skiptir þá meira máli hvernig æfingin er gerð en hvað hún heitir. Knapinn kemur með tónlist sem hæfir sýningunni. Áður en keppni hefst, skulu keppendur skila dómurum lista yfir þær æfingar og dómsatriði sem þeir ætla að sýna í keppninni.

Stór hluti af keppninni er  frjáls sýning þar sem keppandi getur farið á kostum og sköpunarmáttur og frumleg hugsun getur notið sín. Keppandinn getur þá gert það sem honum hugnast best til að reyna að sanna fyrir dómurum og áhorfendum að ofangreind atriði séu til staðar.  Hér eru nokkur dæmi um óhefðbundnar æfingar sem mætti nota:  Afturfótasnúningur á tölti, tölt við hendi án taums, hringteyming á stökki án línu, spánska sporið, sitja, liggja, beislislaust, standa á afturfótum, brokka á staðnum, fljúgandi stökkskiptingar, hestur hneigi sig o.sv.frv. o.sv.frv.

Reglur „Hestamennskunnar“ verða kynntar á morgun hér á Eiðfaxa.is
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link