Nýjar og spennandi dagsferðir hjá Íshestum
Í nýjasta fréttabréfi Íshesta er kynntar nýjar og spennandi dagsferðir sem verður boðið upp á vetur.
NORÐURLJÓSAFERÐIR
Íshestar bjóða uppá nokkrar nýjar og áhugaverðar dagsferðir í vetur. Þar sem von er á miklum norðurljósum þá er okkur sönn ánægja að bjóða uppá norðurljósaferðir á hestbaki á hverju föstudagskvöldi frá 15. september – 1. mars.
Farþegar eru sóttir á hótel kl. 20:00 og ættu að vera komnir aftur á hótel um kl. 22:30. Hestaferðin tekur um klukkustund og er riðinn s.k. skógarhringur í Hafnarfirði sem er dauflega upplýstur á frábærri reiðgötu í gegnum hraunbolla og grenitré, sannkölluð ævintýraferð! Nánari upplýsingar um ferðina finnur þú hér.
Reiðtúr og Fontana Spa
Hvað er betra en að byrja daginn á reiðtúr og láta síðan þreytuna líða úr sér í náttúrulegu gufubaði? Í samvinnu við Kynnisferðir bjóðum við uppá samsetta ferð sem byrjar á ,,Lava Tour“ fyrir hádegi en síðan er farið beint í Fontana Spa á Laugarvatni og komið við á Þingvöllum á leiðinni aftur til Reykjavíkur. Þessi ferð er daglega kl. 10:00 allt árið um kring. Nánari upplýsingar hér.
Hestar og hjól / Klárar og kvöldverður
Fram til 15. október bjóðum við uppá tvær nýjar ferðir. Annars vegar Hestar og Hjól þar sem farþegar upplifa Reykjavík á hjólhesti fyrir hádegi en njóta íslenska hestsins eftir hádegi. Sjá nánar hér.
Klárar og kvöldverður er hins vegar stuttur reiðtúr frá Hafnarfirði kl. 16:30 og síðan eru farþegar keyrðir í Fjörugarðinn þar sem bíður þeirra kvöldverður á hætti Hafnfirskra víkinga. Sjá nánar hér.
Nestispakkar – Nýjung
Í flestum samsettu ferðunum okkar eru núna nestispakkar innifaldir en við urðum vör við að gestirnir höfðu engan tíma til að borða á milli ferða. Það er ómögulegt að vera með tóman maga í ævintýraferðum! Nestispakkinn samanstendur af samloku, flösku af Trópi, ávöxt og súkkulaðistykki. Einnig er hægt að kaupa nestispakka hjá okkur.
Opnunartímar
Hestamiðstöð Íshesta er opin frá 08:00 – 17:00 en tekið er við símapöntunun til kl 22:00. Síminn er 555-7000 og netfangið fyrir dagsferðirnar er [email protected]
Starfsmenn sem taka við pöntunum
Í hestamiðstöðinni starfa um 15 manns. Þau sem taka við pöntunum frá ykkur eru: Harpa Sævarsdóttir, Jelena Ohm, Silja Birgisdóttir og Einar Þór Jóhannsson. Um helgar koma inn Lilja og Heiða. Starfmenn Íshesta
Hestarnir
Í vetur verðum við með um 40-50 hesta á járnum, allt frá byrjendahestum til flottra gæðinga fyrir vana knapa. Við kappkostum að finna ,,réttan“ hest fyrir hvern gest. Þetta er jú allt spurning um ástarsamband milli manns og hests.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH