Nýjar töltstjörnur

  • 6. maí 2012
  • Fréttir
Nýjar töltstjörnur

Töltúrslit 1. flokks voru sannkölluð veisla fyrir áhorfendur. Árni Björn Pálsson fór þar með sigur af hólmi á Stormi frá Herríðarhóli, 8 vetra Aronssyni.

Annar var Viðar Ingólfsson á Vornótt frá Hólabrekku. Báðir þessir gæðingar eru tiltölulega nýmætt á keppnisbrautina og eiga sannarlega framtíðina fyrir sér á þeim vettvangi miðað við tilþrif dagsins.
 
1  Árni Björn Pálsson / Stormur frá Herríðarhóli         8,06            
2  Viðar Ingólfsson / Vornótt frá Hólabrekku             7,78            
3  Siguroddur Pétursson / Glóð frá Kýrholti              7,56            
4-5   Vigdís Matthíasdóttir / Stígur frá Halldórsstöðum             7,11            
4-5   Sara Ástþórsdóttir / Sóllilja frá Álfhólum            7,11            
6  Lena Zielinski / Sóllilja frá Hárlaugsstöðum 2                6,94 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link