Nýr alþjóðadómari
Sigríður Pjetursdóttir er nýr alþjóðadómari
Nú í haust fór fram alþjóðadómaraprófið á Kronshof í Þýskalandi. Fimm dómarar fóru fyrir hönd Íslands til að þreyta prófið og af okkar hóp náði Sigríður Pjetursdóttir með glæsibrag og verður hún okkur án efa til sóma í starfi sínu.
Einnig skal tekið fram að annar Íslendingur náði prófinu en það var Valdimar Auðunsson en hann er búsettur í Austurríki.
6 dómarar náðu alþjóðadómaraprófi FEIF nú í haust en þau eru:
Oliver Kubingar (Austurríki)
Sigríður Pjetursdóttir (Island)
Anette Lohrke (Þýskaland)
Beatrix Berg (Þýskaland)
Alexandra Baab (Þýskaland)
Valdimar Auðunsson (Austurríki)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH