Nýr auglýsingastjóri Hestablaðsins

  • 7. nóvember 2011
  • Fréttir
Daníel Smárason tekur við keflinu

Daníel Smárason er nýr auglýsingastjóri Hestablaðsins. Daníel, sem er Reykvíkingur, er tamningamaður og þjálfari frá Hólaskóla og hefur unnið við tamningar síðastliðinn áratug, meðal annars á Ármóti á Rangárvöllum, Álfhólum og Kanastöðum í Landeyjum. Hann er því flestum hnútum kunnugur í íslenska hestaheiminum. Hestablaðið væntir mikils af Daníel, sem hefur þegar tekið til starfa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link