Nýr dómskali – reiðdómurinn

  • 25. maí 2020
  • Fréttir

Glóðafeykir frá Halakoti í kynbótadómi knapi: Daníel Jónsson

Nú er stutt í fyrstu kynbótasýningar á Íslandi og er því rétt að fara yfir nýjungar í nýja dómskalanum er varða útfærslu reiðdómsins. Farið verður fyrir yfir hverja gangtegund en flestar breytingarnar eiga við þegar gefnar eru einkunnir 9,0 eða hærra.

Ítarlegri grein um nýja dómskalann má finna í stóðhestabók Eiðfaxa, sem hægt er að kaupa í vefverslun Eiðfaxa eða þá á dreifingarstöðum víðsvegar um landið. Þá má einnig finna grein á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, með því að smella hér.

Tölt

Í nýjum dómskala er stefnan að leggja aukna áherslu á jafnvægi og að hesturinn sé sjálfberandi undir manni. Til að meta þessa þætti sérstaklega er gott að sjá hestinn aðeins á slökum taum og sjá hraðabreytingar. Til þess að hljóta einkunn upp á 9,0 eða hærra fyrir tölt er því gerð krafa um að sýndar séu hraðabreytingar (þ.e. greinileg uppkeyrsla og/eða niðurhæging) og að sýnt sé fram á að hesturinn haldi jafnvægi á gangtegundinni þegar greinilega losað er um tauminn. Þessi verkefni, séu þau vel framkvæmd, geta að auki vegið til hækkunar á einkunnum neðar í skalanum.

Í sambandi við verkefnið að losa um tauminn er hugmyndin sú að losað sé alveg um taumsamband í að lágmarki 3 sekúndur (taumur gefinn fram); að það sé nóg prufa á það hversu sjálfberandi hesturinn er.

Þröskuldar í tölti – eins og fólk þekkir eflaust hefur mátt muna einum heilum í einkunn á hægu tölti og tölti; þ.e. hross hefur getað fengið t.d. 9,0 fyrir tölt með 8,0 fyrir hægt tölt. Í nýjum skala er lögð meiri áherslu á gæði á hægu tölti á þann veg að þegar hross hljóta 9,0 eða hærra fyrir tölt megi einungis muna hálfum í einkunn á hægu tölti og tölti (einkunn fyrir hægt tölt megi einungis vera hálfum lægri). Áfram megi muna heilum í einkunn upp í 8,5 í skalanum og einnig almennt þegar um fjögurra vetra hross er að ræða (mismunandi kröfur eftir aldri).

Hægt tölt

Til að meta ákveðna þætti hæga töltsins er afar upplýsandi að sjá hestinn á hægu tölti sem er sýnt upp af feti. Þessir þættir eru hreinleiki gangtegundarinnar og jafnvægi en einnig fjaðurmagn á hægu og eðlisfótaburður. Fyrir hinar hærri einkunnir (9,0 eða hærra) þarf hesturinn því að geta gengið upp í jafnvægisgott hægt tölt af feti án þess að þurfa til þess langan aðdraganda. Gangskiptingin fet upp í hægt tölt þarf ekki að fara fram fyrir framan dómpallinn (nóg að hún fari fram í aðdraganda 150 metra kaflans) enda er ekki verið að meta gangskiptinguna sem slíka, heldur gæði hæga töltsins þegar það er sýnt upp af feti.

Brokk

Til að fá auknar upplýsingar um brokkið þegar úrvalseinkunnir eru gefnar (9,0 eða hærra) er hugmyndin að hesturinn sé sýndur á fleiri en einu hraðastigi, þ.e. á hægu brokki eða hægri milliferð og einnig greiðari ferð. Hingað til hefur sú vinnuregla verið við lýði að sé gefið 9,5 eða 10 fyrir brokk, að þá sé hesturinn sýndur á milliferð, auk greiðari ferðar. Nú er hugmyndin að útfæra þetta skýrt í skalanum og gera þessa kröfu þegar einkunnir 9,0 eða hærra eru gefnar. Stefnan er sú að hross sem hljóta úrvalseinkunnir hafi sannarlega bætandi áhrif á brokk í stofninum en þá er mikilvægt að hrossið sé takthreint, beiti sér rétt og búi yfir fjaðurmagni á hægari ferð. Þá geta hraðabreytingar í góðu jafnvægi vegið til hækkunar á einkunnum hvar sem er í skalanum.

Skeið

Þegar kemur að mati á skeiði er nýjung í skalanum að gerðar eru minni kröfur til fjögurra vetra hrossa hvað lengdina á sprettinum varðar. Fyrir fjögurra vetra hross er full sprettlengd 75 metrar en 150 metrar hjá eldri hrossum eins og verið hefur. Þá er meira lagt upp úr réttri líkamsbeitingu á skeiði eins og á öðrum gangtegundum og jafnvægi. Auðveld niðurtaka á skeið af stökki, létt taumsamband á sprettinum, sem og mjúkleg niðurhæging í jafnvægi eru verkefni sem geta vegið til hækkunar á einkunnum enda sýna þau fram á jafnvægi hestsins og öryggi á sprettinum. Að sama skapi skal einkunn lækka um 0,5 hið minnsta séu miklir erfiðleikar í upphafi spretts, hesturinn þarf mikla hjálp frá knapa til að halda jafnvægi á sprettinum eða ef hesturinn styttir sig í niðurhægingu. Til að hljóta einkunnir 8,5 og hærra þarf að hleypa hestinum greinilega til skeiðs, þetta er verkefni sem þegar er farið að biðja um.

Stökk

Í nýjum skala hefur stökkið verið skilgreint sem tveir aðskildir eiginleikar, stökk og hægt stökk, með sitt hvort vægið. Þegar stökk hefur verið skilgreint sem tveir eiginleikar er ekki lengur um þröskulda að ræða, þannig að einkunn fyrir hægt stökk hefur ekki áhrif á einkunnagjöf fyrir stökk, eins og verið hefur. Stökk skal sýnt á þeim mesta hraða þar sem hesturinn ræður við að ganga í jafnvægi og burði, þar sem hraðaaukning frá hægu upp í mestu ferð er sýnd. Greinileg hraðaaukning í góðu jafnvægi getur vegið til hækkunar á einkunn og eins ef sýnd er jafnvægisgóð niðurhæging. Full sprettlengd er 150 metrar en eins og með skeiðið er full sprettlengd 75 metrar hjá fjögurra vetra hrossum.

Hægt stökk

Hvað hæga stökkið varðar hefur ræktunarmarkmiðið verið yfirfarið og skýrt en dómskalinn fyrir hægt stökk var fremur lítið skilgreindur. Í nýjum skala er betur lýst hvaða gerðir af hægu stökki eigi að verðlauna til úrvalseinkunna, þar sem t.d. svif og mýkt geta vegið hvort annað upp. Fyrir hinar hærri einkunnir (9,0 eða hærra) þarf hesturinn að geta lyft sér upp í jafnvægisgott hægt stökk af feti eða milliferðar tölti/brokki. Sýning á bæði hægra og vinstra stökki sem og að hesturinn haldi jafnvægi og burði þegar slakað er á taum eru verkefni sem vegið geta til hækkunar á einkunn séu þau vel framkvæmd en ekki er gerð nein krafa um þau.

Fet

Þar hefur ræktunarmarkmiðið einnig verið yfirfarið og skýrt. Í nýjum skala er aukin áhersla á rétta líkamsbeitingu á feti, hesturinn gangi vel í gegnum sig og hafi góða skreflengd en minni áhersla á yfirstig á fetinu; það er að afturfótur fari mikið yfir framfótarsporið. Hvað varðar ung hross þá eru gerðar minni kröfur um stöðuguleika sýningarinnar, þ.e. ef ung hross missa einbeitingu á fetinu, að dæma til einkunnar bestu kafla sýningarinnar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link