Nýr mótsstjóri ráðinn
Nú hefur nýr mótsstjóri verið ráðin fyrir Landsmót sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016. Fyrir valin varð Eyþór Jón Gíslason stjórnarmeðlimur Landssambands hestamannafélaga með meiru.
Eyþór Jón Gíslason er Dalamaður búsettur í Búðardal og félagi í Hestamannafélaginu Glað. Hann starfar sem rekstrarstjóri á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni í Búðardal ásamt því að vera starfandi sjúkraflutningamaður á svæðinu. Eyþór hefur verið í sveitarstjórn Dalabyggðar um árabil og gengt ýmsum störfum fyrir sveitarfélagið. Hann hefur verið í framkvæmdarstjórn Fjórðungsmóts Vesturlands síðustu 4 fjórðungsmót og hefur einnig starfað á fjórum síðustu landsmótum. Eyþór stundar hrossarækt með föður sínum og eru að fæðast um 5 folöld á ári. Sambýliskona Eyþórs er Svala Svavarsdóttir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH