Nýr verkefnastjóri Reiðmannsins

  • 6. janúar 2022
  • Fréttir
Randi Holaker hefur tekið við sem verkefnastjóri í Reiðmanninum hjá Endurmenntun Lbhí

Randi Holaker hefur tekið við sem verkefnastjóri í Reiðmanninum hjá Endurmenntun LbhÍ. Randi er fædd og uppalin rétt fyrir utan Osló í Noregi. Hún er menntuð hjúkrunarfræðingur, með grunnmenntun í kennslufræði, sem og tamningarmaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Randi er gæðingadómari, hefur lokið fyrri hluta íþróttadómaranáms, er knapamerkjadómari og með réttindi til og hefur tekið virkan þátt í að dæma gæðingafimi.

Randi býr á Skáney í Reykholtsdal í Borgafirði ásamt Hauki Bjarnasyni og tveimur dætrum. Þar reka þau allsherjar hrossaræktarbú í mjög góðri aðstöðu og eru með ræktun, kennslu, þjálfun og sölu.

Randi hefur brennandi áhuga á reiðkennslu og býr yfir mikilli reynslu á því sviði bæði innanlands og erlendis. Þá hefur hún sinnt kennslu við Landbúnaðarháskóla Íslands í nokkur ár.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link