Nýr vetrargestur komin
Stóðhesturinn Klettur frá Hvammi er mættur til vetrardvalar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hann er undan þeim Gusti frá Hóli og Dóttlu frá Hvammi. Klettur er skráður gráskjóttur í Veraldarfeng, ættarbók íslenska hestsins. Hann er þó orðinn töluvert hvítur þó enn sé hægt að sjá móta fyrir gráa litnum. Hann hefur hæst fengið 8,49 í aðaleinkunn kynbótamats og allar einkunnir fyrir hæfileika eru 8 eða hærri og sú hæsta 9,5 fyrir brokk.
Klettur frá Hvammi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH