Nýtt Íslandsmet í 250m skeiði
Kóngur frá Lækjamóti er nýr Íslandsmethafi í 250 metra skeiði með rafrænni tímatöku. Kóngur hljóp vegalengdina á 21,89 sekúndum á Íslandsmótinu á Selfossi í sumar, sem er besti tími ársins. Knapi Elvar Eylert Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði.
Stjórn og keppnisnefnd LH hefur farið yfir göng sem fylgdu umsókn um metið. Allar aðstæður reyndust löglegar. Kóngur er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Höffu frá Samtúni 1. Ræktandi er Páll Þórir Viktorsson.
Elvar keppti á Kóngi HM2011 í Austurríki fyrir Ísland hlaut þar silfur í 100 metra skeiði á 7,44 sekúundum, og fór 250 metrana á 22,70 sekúndum. Eftir mótið keypti Bjarni Jónasson hestinn ásamt viðkiptafélaga ytra. Bjarni keppti á Kóngi á Skeiðmeistaramótinu í Þýskalandi og þá hljóp Kóngur 250 metrana á 22,61 sekúndu en 100 metrana á 7,83 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH