Nýtt kynbótamat
Nýtt kynbótamat hefur verið reiknað en það var gert 27. september. Kynbótamatið er reiknað tvisvar á ári, um vorið og svo þegar sýningum hefur lokið.
Hæstu sýndu stóðhestarnir fyrir kynbótamat eru Arion frá Eystra-Fróðholti og Oliver frá Kvistum en þeir eru báðir með 131 stig. Næstir í röðinni eru Þórálfur frá Prestsbæ, Spuni frá Vesturkoti og Divar frá Lindnas en þeir eru með 129 stig.
Efsta hryssan fyrir kynbótamat er líkt og í fyrra Maístjarna fran Knutshytttan með 134 stig. Næstar fyrir neðan er Þóra frá Prestsbæ með 132 stig og Djörfung fran Solbacka með 131 stig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH