Nýtt myndband um útflutningsferðalag íslenska hestsins
Horses of Iceland hafa gefið út glæsilegt myndband sem sýnir ferðalag hesta sem eru fluttir frá Íslandi til annarra landa. Myndbandið verður sýnt á öllum miðlum Horses of Iceland, þ.e. vef, samfélagsmiðlum og YouTube rás og frá og með föstudeginum 28. janúar verður það sýnt á vef Horse & Country TV sem nær til um 48 milljón heimila um allan heim. Að auki verður myndbandið sýnt á Amazon.com sem er einnig gríðarlega stór markaðsgluggi fyrir hestinn okkar.
Wildhorse Films voru hér á landi síðasta haust til að taka upp efni í þessa heimildarmynd sem ber á ensku heitið ‘The Export Journey of the Icelandic Horse.’
Í myndinni er tekið hús á lykilaðilum sem koma að ræktun, þjálfun, kennslu, sölu, ferðalögum á hestum og útflutningi á hrossum frá Íslandi og ferlið rætt frá A-Ö. Talað eru helstu markaði íslenska hestsins í Evrópu og Skandinavíu og hvernig vinsældir íslenska hestsins virðast vera að aukast jafnt og þétt, enda voru 3.341 hross flutt út á árinu 2021, samkvæmt tölum frá WorldFeng og er það nýtt met í fjölda frá upphafi skráninga en gamla metið var frá árinu 1996 og var 2.841 hross.
Myndbandið var frumsýnt í dag, föstudaginn 28. janúar en hægt er að horfa á það HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH