Nýtt tölublað Eiðfaxa að koma út
Þriðja tölublað Eiðfaxa 2012 er komin út í vefútgáfu og mun berast áskrifendum eftir næstu helgi.
Blaðið er glæsilegra sem aldrei fyrr, 68 síðna tímarit fullt áhugaverðum og fróðlegum greinum sem tengjast íslenska hestinum og hestamennsku.
Undirbúningur Landsmóts 2012 stendur nú sem hæst þar sem hylltir verða fremstu gæðingar landsins. Stíf þjálfun afrekshrossa hefur staðið yfir síðustu mánuði og viðbúið að vonarstjörnur fái að blómstra á uppskeruhátíð hestamanna. Eiðfaxi heimsótti nokkrar af helstu tamningastöðvum landsins og fræddist um upprennandi stjörnur sumarsins.
Jónas Kristjánsson segir frá hestaferðum nálægt vötnum, Einar Öder Magnússon fjallar um mýkt, Jakob Svavar undirbýr hross undir sýningu í þjálfunargrein sinni, doktorsritgerð Elsu Albertsdóttur um kynbótamat á keppniseiginleikum eru til umræðu, Carlotta Oddsdóttir fjallar um fyljunarvandamál og margt fleira.
Áskrifendur Eiðfaxa geta nú nálgast þriðja tölublaðið í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525 eða rafrænt hér.
Þeir sem kjósa frekar að kaupa blaðið í lausasölu get gert það hér í vefversluninni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH