Ófeifur og Bjarni sigruðu A-flokk
Gæðingamót hestamannafélagsins Trausta í Laugardal, Grímsnesi. Grafningi og Þingvallasveit fór fram 29. Júlí s.l. á Þorkelsvelli á Laugarvatni í einmunablíðu. Þó ekki hafi verið margir sem skráðu var hestakosturinn frábær og einkunnir því háar. Dómarar voru Hafnfirðingarnir Friðdóra Friðriksdóttir og Sindri Sigurðsson og skiluðu þau hlutverki sínu af vandvirkni og með miklum sóma. Þau höfðu og mörg orð um einstaka umgjörð mótssvæðisins og þá miklu möguleika sem það gefur. Mótið hófst stundvíslega kl. 11:00 og var lokið kl. 16:00. Keppt var í A-flokki og B-flokki gæðinga, barnaflokki, unglingaflokki og tölti. Helstu úrslit urðu þessi:
A-flokkur gæðinga:
1. Ófeigur frá Þóroddsstöðum, knapi Bjarni Bjarnason eink. 8,54
2. Frökk frá Hömrum, knapi Sigurður Halldórsson eink. 8,46
3. Dugur frá Minni-Borg, kn. Halldór Þorbjörnsson eink.8,30
B-flokkur gæðinga:
1. Lukka frá Bjarnastöðum, kn. Guðjón S. Sigurðsson eink. 8,64
2. Hnokki frá Þóroddsstöðum, kn. Bjarni Bjarnason eink. 8,56
3. Mirra frá Minni-Borg, kn. Halldór Þorbjörnsson eink. 8,31
Barnaflokkur:
1. Margrét Bergsdóttir á Ilmi frá Reykhól eink. 7,92
2. Vala Benediktsdóttir á Stássu frá Miðengi eink. 7,80
Unglingaflokkur:
1. Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir á Feng frá Skarði
Tölt:
1. Sandra Pétursdottir Jonsson á Kórónu frá Dallandi eink. 6,50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH