Olivia leiðir eftir forkeppni
Olivia Kasperczyk og Tengill frá Hofi Mynd: CL Foto
Síðasta forkeppni fyrir hádegishlé var í slaktaumatölti í ungmennaflokki. Olivia Kasperczyk og Tengill frá Hofi eru efst eftir forkeppni með 7,13 í einkunn en þau keppa fyrir Danmörku.
Önnur eftir forkeppni er Saga Berggren á Kolfinni från Margaretehof með 7,07 í einkunn og eru þau fulltrúar Svía. Fanndís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum eru þriðju eftir forkeppni með 7,03 í einkunn en þau voru einu fulltrúar Íslands til að tryggja sér sæti í úrslitum.
Niðurstöður úr forkeppni í slaktaumatölti í ungmennaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Olivia Kasperczyk | Tengill frá Hofi | 7,13 |
| 2 | Saga Berggren | Kolfinnur från Margaretehof | 7,07 |
| 3 | Fanndís Helgadóttir | Ötull frá Narfastöðum | 7,03 |
| 4 | Gabriella Stenfeldt Johansen | Dans frá Álfhólum | 6,97 |
| 5 | Paloma Eklund Andersson | Tangó från Zimsen | 6,90 |
| 6 | Frøydis Musdalslien | Kormákur frá Miðhrauni | 6,83 |
| 7 | Palma Sandlau Jacobsen | Búi frá Húsavík | 6,80 |
| 8 | Tekla Petersson | Óríon frá Lækjamóti | 6,67 |
| 9 | Silja Stefansdottir | Magni fra Kvalen | 6,53 |
| 10 | Nathalie Røe-Skavnes | Nói fra Jakobsgården | 6,23 |
| 11 | Linnea Søby | Alvin fra Kringeland | 5,93 |
| 12 | Maren Brandsgård Skaug | Aþena fra Skogly | 5,70 |
| 13 | Kristín Eir Hauksdóttir Holaker | Engill frá Ytri-Bægisá I | 4,10 |
| 14 | Olivia Agerhill | Júlía från Agersta | 3,87 |
Olivia leiðir eftir forkeppni
Endurtók leikinn tíu árum seinna