Öll folöld eiga að vera orðin grunnskráð

  • 28. febrúar 2024
  • Fréttir
Fyrir 10 mánaða aldur eiga öll folöld að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt. 

Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins minnir á að skila á örmerkjum fyrir 1. mars sem er á föstudaginn.

Þeir sem enn eiga ómerkt folöld ættu að huga að því að láta merkja þau við fyrsta tækifæri.

Skráð trippi fædd árið 2022 eru 6.145 (lifandi 5.810), þannig trúlega eru ríflega 1.000 folöld ennþá óskráð en búið er að grunnskrá um 4.500 folöld. Alls hafa 3.340 folöld þegar verið örmerkt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link