Öll hesthús í sama gjaldflokk fasteignagjalda
Alþingi hefur samþykkt frumvarp innanríkisráðherra um breytingar á lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga sem tryggir að öll hestahús hvar sem þau standa á landinu flokkast undir a-lið 3 mgr. 3.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Landssamband hestamannafélaga hefur barist fyrir þessari breytingu síðan 2007. Haraldur Þórarinsson, formaður LH, segist afar ánægður með að þessum áfanga sé nú náð.
„Þetta skiptir verulegu máli fyrir hestaíþróttina og útbreiðslu hennar. Það var um verulega mismunun að ræða eins og málum var háttað og ólíðandi að sumir þurftu að greiða mun meira en aðrir eftir því hvar hestahús þeirra voru staðsett.
Ég vil fyrir stjórn LH þakka öllum þeim sem komu að þessum breytingum, sem verða vonandi til þess að efla hestaíþróttina og það fjölbreyta starf sem tengist henni til heilla fyrir allt samfélagið,“ segir Haraldur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH