Öll landsliðin klár
Það styttist óðum í Heimsmeistaramótið í Herning og eru öll landsliðin orðin klár. Fimmtán lönd taka þátt í íþróttakeppninni en tíu lönd í kynbótadómum. Þau lönd sem senda engan í kynbótadóma eru Færeyjar, Frakkland, Bretland, Holland og Bandaríkin.
Hér fyrir neðan er kynning á sjö landsliðum, austurríska, belgíska, kanadíska, danska, færeyska, finnska og franska.
Austurríska landsliðið
Austurríki er búið að fullskipa landslið sitt með 15 knöpum, í því eru meðal annars 5 ungir knapar og 3 varaknapar. Að auki verða þeir með tvö kynbótahross. Síðast unnu Austurríkismenn gull árið 1999 en það var Höskuldur Aðalsteinsson og Ketill frá Glæsibæ II. Þeir urðu heimsmeistarar í gæðingaskeiði (PP1).
Fullorðnir:
Knapi – Hestur – Greinar
Carina Mayerhofer – Frami von St. Oswald – Flugskeið, 250m. skeið og gæðingaskeið
Gerrit Sager – Sigur frá Hólabaki – Tölt og fjórgangur
Gunnar Hoyos – Ísbjörn vom Vindstaðir – Tölt og fjórgangur
Höskuldur Aðalsteinsson – Aron vom Wotanshof – Flugskeið, 250m. skeið og gæðingskeið
Johannes Hoyos – Hrafn vom Schloßberg – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Marie Lichtenegger – Dynblakkur frá Þóreyjarnúpi – Slaktaumatölt
Piet Hoyos – Glymur frá Flekkudal – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Varaknapi:
Lisa Förster – Erill frá Miðsitju – Flugskeið, 250m. skeið og gæðingaskeið
Ungmenni:
Carole Herritsch – Höfðingi frá Sælukoti – Fjórgangur, slaktaumatölt
Isabella Steck – Galdur frá Flagbjarnarholti – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Martina Pleschounig – Háfeti von St. Radegund – Tölt og fjórgangur
Nadine Schweiger – Skrekkur frá Hnjúkahlíð – Tölt og fjórgangur
Paula Chmelik – Náttdís vom Eylershof – Flugskeið, 250m. skeið og gæðingaskeið
Varaknapar:
Angelika Lehner (YR) – Svört – Tölt og fjórgangur
Vanessa Mayer (YR) – Máni vom Störtal – Flugskeið, 250m. skeið og gæðingaskeið
Kynbótahross:
Flokkur – Nafn – Knapi – Einkunn
6 vetra hryssur – Herda vom Panoramahof – Teresa Fuchs – 8.24
7 vetra og eldri hryssur – Rauðhetta vom Stefanihof – Þórður Þorgeirsson – 8.25
Belgíska landsliðið
í belgíska landsliðinu eru átta íþróttaknapar, þar af þrjú ungmenni og einn varaknapi, og eitt kynbótahross. Moli frá Skriðu er í landsliðinu en á síðasta heimsmeistaramóti var hann í norska landsliðinu. Knapi á honum að þessu sinni er Stijn Rottiers en gaman verður að sjá hvernig þeim tekst til í Herning en Moli var m.a. í a úrslitum í tölti.
Knapar
Frans Goetschalckx – Smellur frá Leysingjastöðum – Slaktaumatölt
Stijn Rottiers – Moli frá Skriðu – Tölt og fjórgangur
Toke Van Branteghem – Skrýmir frá Wyler – Tölt og fjórgangur
Yves Van Peteghem – Sleipnir frá Kverná – Tölt og fjórgangur
Varaknapi:
Toke Van Branteghem – Asi frá Lundum II – Tölt og fjórgangur
Ungmenni:
Cecile Jacobs – Dugur frá Hjálmholti – Tölt og fjórgangur
Celina Janssens – Askur frá Akranesi – Slaktaumatölt
Jin Xing Wan Van Werven – Dímon frá Hofsstöðum, Garðabæ – Tölt og fjórgangur
Kynbótahross:
6 vetra hryssur – Lilja II frá Malou – Erik Spee – 8.12
Kanadíska landsliðið
Kanadíska landsliðið er ekki stórt en einungis tveir knapar eru í liðinu og eitt kynbótahross. Kanada hefur ekki neitt gull á síðustu 8 heimsleikum en kannski verður breyting á því í ár.
Knapar:
Danielle Fulsher – Blika 08 from Fitjamyri – Fimmgangur
Victoria Stoncius – Varmi frá Varmadal – Tölt og fjórgangur
Kynbótahross:
7 vetra og eldri hryssur – Danielle Fulsher – Blika 08 from Fitjamyri – 8.18
Danska landsliðið
Danska landsliðið er firnasterkt en þar fremst í flokki er Julie Christiansen, ríkjandi heimsmeistari í slaktaumatölti, á Straumi frá Seljabrekku. Þau hljóta að vera mætt til Herning til að verja titillin en þau munu keppa í fjórum greinum. Sextán knapar eru í dannska landsliðinu þar af fimm ungmenni og þrír varaknapar. Danir senda kynbótahross í hverjum flokki en í röðum þeirra er hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn í ár, Helgnýr frá Pegasus með 8.71 í aðaleinkunn.
Knapar:
Julie Christiansen – Straumur frá Seljabrekku – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Hans-Christian Löwe – Eldjárn fra Vivildgard – 250m. skeið, flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Iben Katrine Andersen – Skuggi frá Hávarðarkoti – 250m. skeið og flugskeið
Rasmus Möller Jensen – Farsæll vom Hrafnsholt – Tölt, 250m. skeið, flugskeið, fimmgangur og gæðingaskeið
Sören Madsen – Hárekur frá Hákoti – 250m. skeið og flugskeið
Steffi Svendsen – Ljóni frá Ketilsstöðum – Tölt, 250m. skeið, flugskeið, fimmgangur og gæðingaskeið
Susanne Larsen – Brúsi frá Helledige – Fjórgangur og slaktaumatölt
Trine Risvang – Hylur frá Austurkoti – Tölt og fjórgangur
Varaknapar:
Dennis Hedebo – Léttir fra Hellesylt – 250m. skeið, flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Julie Christiansen – Hugur frá Flugumýri II – flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Ungmenni:
Caroline Poulsen – Helgi frá Stafholti – Tölt og fjórgangur
Frederikke Stougard – Börkur frá Sólheimum – Tölt
Kristian Tofte Ambo – Tónn frá Ólafsbergi – Tölt, flugskeið, fimmgangur og gæðingaskeið
Sasha Sommer – Snar frá Kjartansstöðum – Tölt, 250m. skeið, flugskeið, fimmgangur og gæðingaskeið
Sofie Panduro – Gammur frá Reykjavík – 250m. skeið, flugskeið og gæðingaskeið
Varaknapi
Kristine B. Jörgensen – Týr frá Þverá II – Tölt og fjórgangur
Kynbótahross:
Stóðhestar 7v. og eldri – Fimur frá Egholm – Agnar Snorri Stefánsson – 8.62
Stóðhestar 6v. – Helgnýr frá Pegasus – Jóhann R. Skúlason – 8.71
Stóðhestar 5v. – Röskur fra Skjod – Agnar Snorri Stefánsson – 8.40
Hryssur 7v. og eldri – Folda frá Fælled – Þórður Þorgeirsson – 8.14
Hryssur 6v. – Árdís frá Guldbæk – Moller Jensen – 8.53
Hryssur 5v. – Sorg fra Slippen – Jóhann R. Skúlason – 8.24
Færeyska landsliðið
Tveir knapar eru í færeyska landsliðinu, Elin frá Tindskarð og Jóanis frá Hoygarðinium. Færeyingar eru með engann keppanda í tölti né fjórgangi en einblína frekar á fimmgangsgreinarnar. Enginn kynbótahross eru í liðinu.
Knapar:
Elin Tindskarð – Hölkvir frá Ytra-Dalsgerði – Slaktaumatölt
Jóanis í Hoygarðinium – Sambó frá Skarði – 250m.skeið, flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Finnska landsliðið
Finnska landsliðið er skipað tólf knöpum, þar af tveimur varaknöpum og fjórum ungmennum. Í landsliðinu er einnig eitt kynbótahross sem keppir í flokki hryssa 7 vetra og eldri.
Knapar:
Annika Kyrklund – Jara frá Horni I – 250m. skeið, flugskeið og gæðingaskeið
Arnella Nyman – Thór fran Jarsta – Fjórgangur og slaktaumatölt
Juha Matti Kontio – Röðull frá Holtsmúla I – Fjórgangur og tölt
Katie Brumpton – Smári fran Askagarden – Tölt og fimmgangur
Marica Westerholm – Samherji fran Konga – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Nicola Bergman-Knakaala – Fagur fra Limfjorden – Tölt og fjórgangur
Varaknapi:
Katie Brumpton – Háfeti frá Úlfsstöðum – Tölt og fjórgangur
Ungmenni:
Desirée Alameri – Þeyr frá Guldbæk – Flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Oona Ylipuranen – Yngvi fran Aleby – 250m.skeið, flugskeið og gæðingaskeið
Sanni Kosonen – Háleggur fra Sdr.Sognstrup – 250m. skeið, flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Veera Sirén – Aldís frá Miðey – Tölt og fjórgangur
Varaknapi:
Desirée Alameri – Mökkur frá Ytri-Bægisá I – Tölt og fjórgangur
Kynbótahross
Hryssur 7v. og eldri – Drós frá Kuuma – Agnar Snorri Stefánsson – 8.13
Franska landsliðið
Franska landsliðið er orðið fullskipað og eru þar nokkur kunnuleg nöfn í liðinu er Hrísey frá Langholtsparti. Hrísey var seld út í vetur en hún og Lena Zielinski voru búin að gera það gott í keppni hér áður.
Knapar:
Charlotta Gripenstam – Hylur frá Miðhrauni – Tölt og fjórgangur
Charlotte Freitag – Goðrekur frá Torfastöðum – Tölt og fjórgangur
Jacques Pailloncy – Surtsey frá Langholti – Fjórgangur og slaktaumatölt
Michael Becker – Djákni frá Hellulandi – Tölt og fjórgangur
Pascale Kugler – Teista frá Lynghóli – Tölt og fjórgangur
Sophie Clémentz – Líneik von Ásgard – 250m.skeið, flugskeið, slaktaumatölt, fimmgangur og gæðingaskeið
Thaina Lempériére – Hrísey frá Langholtsparti – Tölt og fjórgangur
Ungmenni:
Ayla Marquenie – Núpur vom Schluensee – Tölt og fjórgangur
Xaviére Gabrion – Dalvar frá Auðsholtshjáleigu – Tölt og fjórgangur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH